Úrval - 01.05.1966, Síða 49
LYF, SEM LÆKNAÐ GETUR ....
47
neytenda, sem læknast og leggja
niður þennan ávana sinn, er mjög
lág. Forstöðumenn Ríkissjúkrahúss
éiturlyfjaneytenda, sem er í bænum
Lexington í Kentuckyfylki, skýra
frá því, að yfir 90% sjúklinga þeirra,
sem losna við ávanann, þ.e. hætta
við notkun eiturlyfja eftir að hafa
undirgengizt fuilkomna læknismeð-
ferð, ánetjast ávana þessum að nýju
innan hálfs árs. Samt er þessi já-
kvæði árangur meiri en almennt
gerist, þegar miðað er við læknis-
meðhöndlun á öðrum sjúkrahúsum
og hælum víða um landið.
Hvaða von er þá hægt að gefa
eituriyfjaneytendum?
Nú hefur hópur 22 fyrrverandi
eiturlyfjaneytenda hlotið lækningu
með alveg nýrri aðferð, og virðist
lækning þessi ætla að verða varan-
leg. Allir þessir sjúklingar höfðu
verið eiturlyfjaneytendur í rúm 9
ár. Þessir menn, en hér er eingöngu
um karlmenn að ræða, eru eins
hrifnir og læknar þeirra af gervi-
lyfi einu, sem kemur í stað eitur-
lyfsins og veitir í rauninni hina
fyrstu von þeim sjúklingum, sem
vanir hafa verið því að sprauta eit-
urlyfi beint í æð.
Gervilyf þetta, sem heitir metha-
done hydrochloride, er svipað hero-
ini efnafræðilega séð. Skammtur af
methadone, svipaður að magni og
heroinskammtur sjúklingsins, sefar
heroinhungur líkamans. Og breyt-
ingin frá því að taka inn heroin og
til þess að taka inn methadone hef-
ur engar slæmar hliðarverkanir í
för með sér.
Methadone losar eiturlyfjaneyt-
andann úr viðjum hinnar stöðugu
löngunar í stærri skammt af hero-
ini. í stað þess að hugsa og tala
stöðugt um eiturlyf, getur sjúkling-
urinn stundað sína vinnu eða sitt
nám, haft ofan af fyrir sér og orðið
nýtur þjóðfélagsþegn á nýjan leik,
fundið persónuleika sinn að nýju.
Læknarnir Vincent P. Dole og
Marie Nyswander hófu methadone-
meðhöndlun á tveim fyrstu sjúkl-
ingunum í febrúar árið 1964 sem
þátt rannsókna, er framkvæmdar
voru af Rockefellerháskólanum í
New Yorkborg. Þau notuðu stærri
skammta en áður höfðu verið not-
aðir, vegna þess að sjúklingarnir
voru orðnir mjög vanir eiturlyfjum
og þeim algerlega háðir.
Um þessar fyrstu tilraunir segir
dr. Nyswander þetta í skýringar-
skyni: ,.Við vissum, að methadone
var mjög gott kvalastillandi lyf; að
áhrif þess vörðu lengi og að þau
gerðu sjúklingunum fært að venj-
ast af eiturlyfjunum á sem sárs-
aukaminnstan hátt. Hinir góðu eig-
inleikar lyfsins hefðu kannske ekki
orðið eins augsýnilegir, hefðum við
gefið miklu minni skammta af því,
líkt og gert hafði verið í öðrum
methadonetilraunum, sem ekki
höfðu gefizt mjög vel“.
Miklar breytingar.
Dr. Dole gerði sér fyrst grein fyr-
ir því, að breytingar voru að verða
á sjúklingunum, þegar annar þeirra
byrjaði að mála sér til afþreyingar
af miklum áhuga og hinn bað
sjúkraliðið um leyfi til þess að fá
að læra og búa sig undir gagn-
fræðaskólapróf utanskóla. Fyrsti
sjúklingurinn, sem verið hafði eit-