Úrval - 01.05.1966, Síða 54
52
ÚRVAL
sennilega ekki heyrt um fyrr, var
gerð af Pierre Janet, frönskum sál-
fræðingi og dáleiðanda, árið 1884.
Hinn frægi læknir, Jean Martin
Charcot, hafði yfirumsjón með til-
rauninni og ýmsir kunnir menn
voru þáttakendur. Janet sagði í
skýrslu sinni um tilraunirnar: „Við
gættum ýtrustu varúðar ... Aðeins
ein niðurstaða kemur til greina, sú,
að gera beri tilraunina oftar og
rannsaka þá fyrirbærið."
En þetta var einmitt það sem
ekki gerðist. „Janet nam staðar við
þröskuld frumleikans og hins nýja
skilnings. Hann rakst á óskastein
en lét hann liggja kyrran og greip
ekki hið gullna tækifæri", sagði
sálfræðingurinn Jule Eisenbud í
yfirlitsgrein um tillag sálgreinenda
til fyrirburðafræðinnar (parapsy-
cology). Dr. Eisenbud sagð, að með
tilliti til þess hve fjarhrifafyrirbæri
og önnur „sálræn“ fyrirbæri geta
verið þýðingarmikil til skilnings á
manneðlinu, þá mætti það þykja
furðulegt að sálfræðingar skuli ekki
hafa lagt meiri skerf til fyrirburða-
fræðinnar en raun ber vitni. Hins-
vegar sagði hann að afsönnunin
lægi ef til vill í líkingu fyrirbær-
anna við margt það, sem fram
kemur hjá geðveikum mönnum, en
hverfur þegar þeim batnar sjúk-
leiki sinn.
82 ÁRUM SÍÐAR
Nú á dögum, eða 82 árum eftir
tilraun Janets, má enn telja þá
sálgreinendur á fingrum sér, sem
gefa fjarhrifafyrirbrigðum veru-
legan gaum, segir dr. M. Ullman,
yfirmaður sálgreininga við Maim-
onidesspítalann í New ork, en hann
er þá líka einn af þeim tíu sem um
er að ræða í Bandaríkjunum. Talið
er að ekki hafi fleiri en sex há-
skólamenntaðir menn í Bandaríkj-
unum fyrirburðarannsóknir sem að-
alstarf, en um fjörutíu verja hluta
af starfstíma sínum til þess og eru
þá hinir sex sálgreiningalæknar
taldir með.
NÝ VÍSINDI
En þessi hópur, sem fer stækk-
andi, og nýtur fylgis margra stuðn-
ingsmanna, er þegar farinn að tala
um framkomu nýrra vísinda, þar
sem þessar rannsóknir eru. Meðal
þeirra sem styðja er Ameríska
fyrirburðarannsóknafélagið, en það
hefur starfað í 81 ár (A.S.P.R.).
Rannsóknamennirnir eru farnir að
beita nákvæmum, vísindalegum
eftirgrennslunaraðferðum í starfinu,
þeir nota tæki eins og rafreikni-
vélar og einkasjónvarp til þess að
hafa fulla vissu fyrir að engin vitn-
eskja geti borizt eftir aukaleiðum.
Og jafn óeftirgefanlegur vísinda-
maður og Dr. Henry Margenau við
Yale-háskólann er farinn að eiga
einkaviðræður við þá um þessi mál.
En hann er talinn með fremstu
mönnum að því er snertir heim-
spekilegar undirstöður vísindanna.
Þeir reyna í sameiningu að gera sér
grein fyrir því, á hvaða undir-
stöðuatriðum slík ný vísindi verði
að byggjast.
Nýlega stofnaði félagið til fyrsta
vísindalegs umræðufundar síns.
Tvöhundruð áheyrendur voru þarna
saman komnir, þeirra á meðal vís-
indamenn frá meir en fjörutíu há-