Úrval - 01.05.1966, Page 56
54
ÚRVAL
tala yfir fjölmennum hópi áheyr-
enda, sem þó skildu ekki neitt í
því að ræðan var á ókenndu tungu-
máli. En hitt vissi sjúklingurinn
ekkert um að læknirinn var í mestu
vandræðum með að koma saman
ræðu sem hann átti að fara að
halda. Efnið í ræðuna var tekið frá
einhverri fjarlægri og framandi
þjóð, og vissi læknirinn að áheyr-
endur sínir myndu hafa takmark-
aða trú á gildi hinna ókunnuglegu
hugmynda.
Dr. Ullman sagði að fjarhrifa-
draumar kæmu oft furðulega á óvart
og stundum væri þeim eins og fyrir-
komið á heppilegasta hátt í sam-
bandi við starfið að lækningunni
En hann heldur að draumarnir séu
tilviljunarkenndir og ófyrirsjáan-
legir. Þegar þeir koma, þá eru ekki
fyrir hendi fyrirframráðstafanir til
að girða fyrir að vitneskjan hafi
getað borizt eftir hinum kunnari
leiðum.
GÖMIJL SKOÐUN
Þar sem Ullman hallaðist að hinni
viðteknu skoðun, að í annarlegu
meðvitundarástandi eins og t.d.
draumum gerðust þessi fyrirbæri
fremur en til annars, þá setti han
á stofn vísindalega starfsdeild með
skáldlegu nafni: Tilraunastofu-
draumanna, á Maimonidessjúkra-
húsinu, en þar er hann starfandi.
Hann gat þarna byggt á verki sem
þegar var komið vel á veg, því að
dr. Nataniel Kleitman og dr. Willi-
am Dement, lífeðlisfræðingur og sál-
fræðingur, höfðu riðið á vaðið ná-
lega tíu árum fyrr með því að finna
aðferð til að fylgjast með draumum
sofandi manns. Eins og víða hefur
verið frá skýrt, þá fundu þessir
menn að hjá sofandi manni koma
fram örar augnhreyfingar eða augn-
vöðvarykkir meðan á draumi stend-
ur, og má fylgjast með þessu á raf-
heilarita. Með þessu var ekki ein-
ungis gert kleift að fylgjast skipu-
lega með draumtímanum, heldur
mátti ná í frásögn af nálega hverj-
um draumi einhverja tiltekna nótt,
með því að vekja dreymandann
iafnan á milli. Þessir menn fundu
það einnig að flesta menn dreym-
ir að jafnaði án þess að langt líði
á milli, suma einum sex sinnum eða
oftar á nóttu, og ennfremur að
draumarnir standa ekki eins stutt
og sumir höfðu talið.
TILRAUNASTOFA DRAUMANNA
f tilraunastofu draumanna eru
fiarhrifadraumar kannaðir undir
ströngum varúðaraga. Það er girt
fyrir að vitneskjan berist eftir
öðrum leiðum og þrír menn dæma
um það sinn í hverju lagi, hvort
tiltekin atriði hafi borizt á milli.
Sendandinn hefur engin venjuleg
sambönd við dreymandann þá nótt-
ina sem tilraunin fer fram. Þriðji
maðurinn, sem er tilraunastjóri,
vekur dreymandann og skráir
drauminn. Einu sinni var sendand-
inn látinn skoða hina heimsfrægu
mynd Orozco’s „Zapatistas", en þar
sést til Mexíkómanna sem ýmist
eru gangandi eða ríðandi og fjalla-
landslag í baksýn. En hiá viðtak-
anda komu fram eftirfarandi
draumar: ,,Mig dreymdi hvassviðri
og rigningu. Þetta minnir mig á
ferðalög. Þessu svipar eitthvað til