Úrval - 01.05.1966, Qupperneq 62
60
ÚRVAL
að skjóta eldflaugum til stjarna ut-
an sólkerfis okkar, fyrr en slík eld-
flaug hefur verið fundin upp, eða
smíðuð og það telja þeir ekki fjar-
stæðukennt að ímynda sér að gæti
orðið fyrir lok þessarar aldar.
Þessi eldflaug yrði svo öflug og
geislavirkni hennar svo mikil, að
það væri ekki hægt að skipta yfir
til andefnisorkunnar, fyrr en eld-
flaugin væri komin milljónir mílna
í burtu frá jörðini.
Það verður í þessum Ijóseldflaug-
um, sem maðurinn heimsækir
stjörnumar, og kynnist leyndar-
dómum þeirra.
Þú getur gert þér í hugarlund, •
lesandi góður, hverskonar verk;efni
við eigum hér fyrir höndum, ef þú
tekur sandkorn og leggur það á
mitt Lækjartorgið í Reykjavík og
lætur það tákna jörðina okkar, og
síðan tekurðu annað sandkorn sem
þú lætur tákna stjörnuna Proxima,
sem er næst okkur í Vetrarbraut-
inni, utan okkar sólkerfis, þá verð-
urðu að ganga með hið síðara sand-
korn fimmtán enskar mílur (24
km) í burtu frá því fyrra, eða lang-
leiðina upp að Skíðahótelinu á
Hellisheiði, til að fj arlægðarhlut-
föllin milli sandkornanna séu þau
sömu og Jarðarinnar og Proxima.
MYNDAVÉL, SEM STANZAR BYSSUKÚLU
„Byssukúlan stöðvast aðeins nokkrum þumlungum frá hlaupi byss-
unnar." Þetta hljómar furðulega, en slíkt tekst einmitt myndavél einni,
sem er mjög hraðvirk og getur tekið allt að 14.000 myndir á sekúndu.
Hún getur jafnframt stöðvað byssukúlu hvenær sem er, jafnt rétt
eftir að hún er komin úr hlaupinu og þegar hún hefu þotið góðan spöl.
Ef þið haldið, að það sé furðulegt, að myndavél skuli geta tekið
14.000 myndir á sekúndu, eigið þið eftir að verða enn meira hissa.
Vísindamenn i Aldermaston í Englandi hafa búið til nýja gerð af mynda-
vél, sem getur tekið 60 milljónir mynda á sekúndu.
Þessi nýja myndavél, sem hlotið hefur heitið „image tube camera“
er í rauninni rafeindavél og vinnur á svipaðan hátt og útbúnaður sá,
sem tekur á móti geysilegum fjölda sjónvarpsmynda með svo miklum
hraða, að þær renna saman í eitt og sýna eðlilega hreyfingu.
Myndir myndavélar þessarar eru vart stærri en títuprjónshaus; sem
síðan er hægt að stækka að vild. Þær koma fram á filmulengju, þegar
rafeindageisla er beint yfir filmulengjuna.
Það er alger barnaleikur fyrir „image tube“-myndavélina að taka
mynd af byssukúlu, sem þýtur úr byssu. Myndavél þessi hefur verið
gerð til þess að gera vísindamönnum fært að taka röð af myndum af
ýmsu því, sem gerist leiftursnöggt t.d. sprengingum og hvernig þær
hegða sér eða fæðingu, lífi og dauða lítils rafmagnsneista.
Sunday Express