Úrval - 01.05.1966, Page 81

Úrval - 01.05.1966, Page 81
HIN FURÐULEGA SAGA SPILANNA 7!) Síðasta stórfellda breytingin á gerð spilanna var framkvæmd fyrir. rúmri öld. Einhverjum datt sú íjnjalla hugmynd í hug, að búa spil- in þannig úr garði, að sama væri, hvor endi þeirra sneri upp, því að hvorugur endinn var lengur öfugur. Áður hafði það verið heilmikil fyr- irhöfn fyrir spilamenn að raða spil- unum þannig, að ekkert þeirra stæði á haus. Aldarfjórðungi síðar var tölustöfum bætt á horn spilanna, þ.e. tölugildi þeirra, og var þetta fyrst og fremst gert til hagræðis fyrir pokerspilamonn, sem þurftu þá ekki að breiða eins mikið úr spilunum og áður, þar eð nú þurftu þeir rétt aðeins að geta séð á horn þeirra. Tvær aðrar breytingar voru fram- kvæmdar tiltölulega nýlega, en hvorug sú breyting hróflar við grundvallargerð spilanna. Báðar þessar breytingar eru beinar afleið- ingar af vaxandi vinsældum bridgs- ins. Breidd pokerspilanna var minnkuð úr 2M> þumlungi í 2% þumlung, og þannig urðu bridge- spilin til. Bridgespilasett (þ.e. tvenn spil) fengu rönd með sitt hvorum andstæðum lit á bakhliðina, svo að auðvelt væri að telja slagina í sund- ur, þar sem þeir lágu hver ofan á öðrum. Fyrstu spilin, sem búin voru til í Nýja heiminum, voru gerð af sjó- mönnum Kólumbusar árið 1492. Þeir fengu langvarandi óveður á leiðinni, og gerðust þeir nú æ hjátrúarfyllri, unz þeir köstuðu þessum „pappa- spjö’dum djöfulsins“ fyrir borð, ef ske kynni að veðrinu myndi þá slota. Brátt sáu þeir eftir þessu fljót- ræði sínu, og þegar þeir fengu fast land undir fætur að nýju, bjuggu þeir sér til ný spil úr Iaufum copa- trésins. Spilaframleiðsla er stóratvinnu- rekstur nú á tímum, en hann krefst óskapiegrar nákvæmni og vand- virkni. Geysivíðtækar varúðarráð- stafanir eru gerðar til þess að hindra, að spilin fái óvart einhver aukamerki við prentunina. Sérhver rykögn er síuð burt úr loftinu í prentsmiðjunni, svo að agnir svífi ekki niður á mótin og framkalli þannig klessuagnir á spilunum. Prentuninni er stjómað með raf- eindatækjum, svo að engin frávik, hversu smá sem þau kynnu að verða, geri eitt spil öðru ólíkt. Verk- smiðja ein varð að innkalla 110.000 pakka af dýrum spilum, vegna þess að komið hafði fram örlítill galli á bakhlið hjartaásanna, sem varð þó rétt með naumindum greindur. Spilaframleiðendur verða að geta sér til um, hvers kaupendur óska, hvað bakhlið spilanna snertir. Yfir- leitt halda þeir sér við þær gerðir, sem hafa reynzt vinsælar, svo sem alls konar mynztur og útflúr. Hund- ar eru alltaf vinsælir á bakhlið spila, einnig skip, fuglar, drekar og lag- legar stúlkur. Spilaframleiðandurnir biðu síð- asta meiri háttar ósigur sinn skömmu eftir heimsstyrjöldina síð- ari. Þeir hugsuðu sem svo, að fyrst fjórir hefðu gaman af að spila bridge, hlytu fimm þá að hafa enn meira gaman af að spila spil þetta. Þeir hófu því framleiðslu spila, sem höfðu að geyma fimm liti í stað
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.