Úrval - 01.05.1966, Qupperneq 108

Úrval - 01.05.1966, Qupperneq 108
106 ÚRVAL ur af honum. Hann hljóp upp stig- ann og hélt til herbergis síns, þar sem hann geymdi tindátasafnið sitt. Hann valdi skrautlegasta og valds- mannslegasta tindátann, sem var úr gleri. Hann var skrautlega málaður og andlitsdrættir hans voru mjög skýrir. Svo fór hann með hann fram í eldhús og greip stóru kjötöxina hennar móður sinnar. Nú skeytti hann ekkert um loftárásina lengur, heldur fór út, lagði tindátann á gangstéttina og hjó af honum haus- inn í einu höggi. „Hana nú“; hróp- aði hann. Og með tárvott andlit leit hann nú með velþóknun á afhöggv- ið höfuð Adolfs Hitlers. „Svo hlýtur að verða bundinn endi á það allt saman“. Foringinn kom labbandi fram á gang neðanjarðarbyrgisins. Hann var lotinn og dró á eftir sér vinstri fótinn. Vinstri handleggur hans skalf, og virtist hann ekki hafa neina stjórn á honum. Hann var 5 fet og 8% þumlungur á hæð, en nú virtist hann miklu lægri, þar eð hann var svo lotinn og líkami hans þar að auki undinn til vinstri. Augun, sem aðdáendurnir sögðu, að væru „seið- mögnuð“, voru nú rauð og blóð- hlaupin. í þeim var sótthitakenndur svipur. Andlit hans var þrútið og gráfölt á litinn með svolítið dekkri blettum á stöku stað. Gleraugu með ljósgrænum glerjum hengu mátt- leysislega í hægri hendi hans. Hann þoldi illa skært ljós nú orðið. Hein- rici lýsir útliti hans eftirfarandi orð- um: „Hann leit út eins og maður, sem á aðeins einn sólarhring eftir ó- lifaðan. Hann var sem lifandi lík“.* * Læknar þeir, sem stunduðu Hitler, sögðu síðar, að ástæðan fyrir því, að heilsu Hitlers hrakaði svo skjótt og hann hafi verið sem hálflamaður, hafi að nokkru leyti verið sálræns eðlis, en slíkt hafi einnig að nokkru leyti mátt rekja til lífernis hans. Hitler svaf varla ekki neitt. Fyrir honum var lítill munur dags og næt- ur. Þar að auki framkallaði óhófleg lyfjanotkun eitrun í líkama hans, og fór hún sívaxandi. En það var uppáhaldslæknir hans, sem spraut- aði stöðugt í hann risavöxnum lyfja- skömmtum. Hitler staulaðist hægt að sæti sínu við borðið í litla fundarherberginu. Það var eins og hann væri sárþjáð- ur. Eismann virtist sem hann félli „eins og poki niður í hægindastól- inn án þess að segja eitt orð“. Hann heilsaði með máttleysislegu handabandi, en Heinrici „gat varla fundið neina snertingu við hönd Foringjans, því að það var ekki um neinn þrýsting að ræða“. Vegna þess að herbergið var svo lítið, biðu flest- ir fundarmennirnir frammi á gang- inum. Þar héldu þeir áfram samræð- um sínum, en töluðu að vísu lágt. Hitler kinkaði kolli, setti upp grænlituð gleraugun og gaf Hein- rici merki um að hefja máls. Hers- höfðinginn komst strax að efninu. „Foringi“, sagði hann, „ég verð að tilkynna yður, að óvinirnir eru nú að undirbúa óvenjulega öfluga árás. A þessu augnabliki eru þeir einmitt að undirbúa árás á þessum svæð- um“. Heinrici, renndi fingrinum eft- ir 75 mílna breiðu miðsvæði Oder- vígstöðvanna, þar sem hann bjóst við mesta sóknarþunganum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.