Úrval - 01.05.1967, Blaðsíða 48
46
ÚRVAL
laust, því að blóðtruflanir og nýrna-
sjúkdóma hefði mátt rekja til þess.
Eftirlitið gerði framleiðendum tvo
kosti: annaðhvort að taka fenaset-
ínið úr blönduninni eða prenta
ströng aðvörunarorð gegn mikilli og
langvarandi notkun. Þrjú stærstu
fyrirtækin fóru hvert sína leið. Em-
pidrin C. prentaði aðvörunina. Exce-
drin tók upp tvö væg efni í stað
penasetíns. Anasín sleppti fenaset-
íni en lét aspirín og kaffín haldast.
Er nú nokkur veruleg bót að öllu
þessu blöndunarstandi með aspirín.
Lyfjafræðingar telja sig ekki hafa
komizt að öruggum niðurstöðum um
það enn sem komið er.
Fjöldi fólks tekur aspirín að stað-
aldri, en vísindamenn og lyfjafræð-
ingar eru á einu máli um, að menn
verði ekki háðir því. Bæði til ígripa
og til lengdar er þetta lyf tiltakan-
lega skaðlaust og hættulaust. Það
eru ekki mörg lyf sem sameina það
að lítill skammtur sé oft til mikilla
bóta og að tiltölulega stór skammt-
ur þurfi ekki að vera hættulegur.
Todd Krebs.
Það var ekki gott flugveður, heldur stormur, og valt flugvélin því
talsvert. Þá mundi ég skyndilega eftir þvi, að ég hafði lofað krökkunum
minum að koma með litla flugmannsvængi handa þeim. Þar var um
að ræða leikföng, sem flugfélagið gaf farþegum eftir ósk. Flugfreyjan
sagðist skyldu ná i þá strax og hún væri búin að bera fram kvöldverð-
inn.
Seinna sá ég hana koma í áttina til mín með vængina. Hún stanzaði
við sætið fyrir framan mig og spurði manninn, sem i því sat, hvort það
væri hann, sem hefði óskað eftir vængjunum.
Honum brá dálítið, en svo svaraði hann: ,,Nei, en haldið þér, að við
munum kannske þarfnast þeirra?"
Frumlegt hús.
Leifar forsögulegs húss, sem byggt var að mestu leyti úr mammúts-
beinum, hafa fundizt í þorpinu Mezhirich nálægt Kaney í Úkraníu, en
þar voru rússneskir fornleifafræðingar að starfa að uppgreftri.
Rússarnir hafa ekki veitt neinar upplýsingar um það, á hvern hátt
bein þessi voru notuð við byggingu hússins, en þeir áætla af fjölda
beina þeirra, sem fundizt hafa, að þau séu úr samtals 60 mammútum.
Þeir álíta einnig, að hús þetta hafi verið byggt fyrir um 5.000 til
7 000 árum. Fornleifafræðingarnir álita, að í því hafi búið um 10 manna
fjölskylda.