Úrval - 01.05.1967, Page 62

Úrval - 01.05.1967, Page 62
60 ÚRVAL nú sífellt, sem taka þessari íþrótt opnum örmum og fá tækifæri til að njóta gleði þeirra og nautnar, sem hún býður upp á, enda hefur íþrótt þessi lengi verið vinsæl ann- ars staðar í heiminum. í Þýzkalandi eru meira en 900 svifflugfélög. Það eru 12 svifflugvellir í nágrenni Par- ísar, og við Lundúni eru þeir næst- um eins margir. Við hér í Banda- ríkjunum erum þó langt á eftir Evrópu, en þó eru nú þegar 170 fé- lög svifflugmanna á skrá hjá Svif- flugfélagasambandi Bandaríkj anna (Soaring Society of America). Eru þau dreifð um gervallt landið. Verk- smiðjan Schweizer Aircraft corp. í Elmira í New York fylki, sem er stærsti sviffluguframleiðandi í Bandaríkjunum, hefur tilkynnt, að sala hennar hafi aukizt um 50% í fyrra. Aðrir framleiðendur hafa skýrt frá svipaðri aukningu. Og þar að auki eru margar svifflugur flutt- ar inn frá Evrópu. Fyrirtaks svifflugsskilyrði hvetja líka bandaríska flugmenn til þess að hefja sig til flugs í svifflugum. Þeir fá í rauninni heimboð í himininn. í landi okkar er mikið um fjöll og sléttur og dýrðlegt sambland suð- rænna loftstrauma og kaldra vinda úr norðri, sem mynda loftupp- streymi í sameiningu. Nálægt Snæfjöllum (Sierra) í Vesturríkjunum streyma sterkir vindar yfir hin háu fjöll og mynda loftstrauma, sem eru alveg tilvaldir fyrir háflug. Þar setti Paul Bikle nýtt heimsmet í hæðarflugi, eða 46.267 fet. f Miðvesturríkjunum er víða um að ræða góð skilyrði til lengdarflugs. Þar setti A1 Parker heimsmet í lengdarflugi án milli- lendingar og var það 647 mílur. f Austurríkjunum er bæði um að ræða öflugt loftuppstreymi og loftupp- streymi upp í fjöllunum. Skilyrðin eru sem sagt góð víðast hvar. Svifflug hefur sína töfra bæði fyr- ir unga sem gamla. Margir áhang- endur þessarar íþróttar hafa ekki haft neina fyrri reynslu sem flug- menn á vélflugum. Sumir þeirra eru kaupsýslumenn í leit að fegurðinni, menn, sem þrá það heitt að rísa hátt upp yfir hið daglega brauð- strit. Þarna er líka um eiginkonur að ræða, sem vilja eiga aðild að þeirri dásamlegu kennd, sem þær heyra eiginmenn sína ræða um svo innfjálgri röddu. Sumir svifflug- mennirnir eru flugmenn á hrað- fleygum þotum, sem þrá hina heitu gleði, sem þeir öðlast við að fljúga án drynjandi hávaða frá hreyflun- um. Sumir hefja svifflug eftir að hafa reynt við aðrar íþróttagreinar. George Moffat, jr., kennari frá Elizabeth í New Jerseyfylki, sem var áður ákafur unnandi siglingaí- þróttarinnar, á nú hraðaheimsmet í svifflugi á fyrirfram ákveðinni 100 kílómetra vegalengd. PRELSI TIL HUGLEIÐINGAR. Það er auðvelt að öðlast lögleg réttindi til þess að fljúga svifflugu, hvort sem maður er 14 ára táningur eða sjötugur. Fyrst þarf að fá kennslu í tveggja sæta svifflugu. Venjulega nægja 4-5 kennslustundir á lofti. Síðan flýgur nemandinn einn (soloflug). Vilji hann fá frek- ari réttindi, sem leyfa honum að fljúga með kunningja sína með sér,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.