Úrval - 01.05.1967, Síða 65

Úrval - 01.05.1967, Síða 65
ÞEIR SVÍFA SEM FUGLAR HIMINSINS 63 að svifflugan væri að byrja að hækka flugið. Þá beygir flugmaður- inn snögglega og snýr við og reynir að svifa ekki út fyrir ,,loftsúluna“, heldur að hækka sig með henni. Það er komið undir ýmsum þátt- um, hversu hátt sviffluga getur komizt í slíku loftuppstreymi, t. d. hvers konar loft hefur valdið þessu uppstreymi og hvaðan það kemur. Kalt loft, sem á upptök sin í .Kan- ada og streymir svo að lokum yfir hinar heitu sléttur Miðvesturríkj- anna, myndar mikið loftuppstreymi, sem getur náð upp í allt að 15.000 feta hæð. í Austurríkjunum, þar sem svalara er, mun uppstreymið aðeins ná hálfri þessari hæð. Því hærra sem loftuppstreymið verður, þeim mun breiðari verður efsti hluti „loftsúlunnar." Nálægt jörðu er hún kannske nokkur hundruð fet í þver- mál, og þá á flugmaðurinn erfitt með að halda sig í uppstreyminu, því að hann hefur svo lítið svigrúm. En hærra uppi er það auðvelt, því að öflugt loftuppstreymi getur orðið allt að 2000 fet í þvermál í mikilli hæð. SAMEIGINLEG ÁNÆGJA. Enginn hefur nokkru sinni komið auga á loftuppstreymi, og það er rætt alveg endalaust um eðli og umfang þess á meðal þeirra, sem leggja stund á svifflugíþróttina. Þetta er einn þáttur þeirrar dulúð- ar, serh tengir svifflugmenn sterkum böndum, jafnvel þegar þeir eru á jörðu niðri. Þótt svifflugmaðurinn svífi oftast einn, þá er hann í stöð- ugum félagsskap „trúarbræðra“ sinna og er alltaf að bera saman bækurnar við þá, skiptast á skoð- unum, læra nýjar brellur og tala um það, sem á dagana drífur í loftinu, nýja reynslu, sem hann hefur öðlazt. Svifflugfélögum fer nú sífjölg- andi. Ein af ástæðunum er þessi nána samfélagskennd, sem meðlim- ir félaganna finna gagntaka sig vegna sameiginlegrar ánægju, er íþróttin veitir mönnum. Það er miklu ódýrara að stunda íþróttina sem meðlimur svifflugfélags. Félag- arnir hjálpa til og vinna alla þá vinnu, sem vinna þarf, allt frá því að mála flugskýlið til þess að fljúga togvélinni. Þar er ekki um að ræða neina starfsmenn á launum. Félagar mínir í svifflugfélaginu mínu eru t. d. verkfræðingar, lögfræðingar, starfsmenn vátryggingafélaga, menn, sem fást við húsabyggingar, rafvii'kjar, prestar, gagnfræðaskóla- og menntaskólanemar. Sé maður meðlimur í svifflugfélagi, kostar það mann um 5 dollara á klukku- stund að svífa, jafnvel þótt toggjald- ið sé reiknað með, sem er 2 dollarar. í þessu gjaldi er einnig innifalinn allur annar kostnaður, svo sem af- skriftir, viðhald flugskýla, notkun jarðýtu og annarra tækja til þess að halda vellinum sléttum, o. fl. o.fl. Viljurðu eiga þína eigin svifflugu, geturðu auðveldlega eytt heilli fjár- íulgu í nýja svifflugu, allt frá 3800 til 10.000 dollara. En svifflugfélögin koma sér einnig skrambi vel, hvað snertir öflun flugvélakosts. Nokkrir meðlimir geta keypt ósamansetta svifflugu á 2575 dollara og sett hana saman að vetri til. Schweizer Air- craft Corp. hefur þegar selt 175 slík sett. Allt það erfiðasta og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.