Úrval - 01.05.1967, Page 66
64
ÚRVAL
vandamesta er unnið í verksmiðj-
unni, og svo getur hver sá, sem er
laginn að nota smíðaverkfæri, sett
sviffluguna saman sjálfur.
Kaup á svifflugu er mjög góð fjár-
festing, því að þær ganga mjög lítið
úr sér. Svifflugan, sem þú smíðar,
getur enzt í allt að 30 ár. Það er
ekki um að ræða neinn titring frá
vél og hreyflum, sem valdi því, að
hún útjaskist og gliðni smám sam-
an í sundur. Ekki er heldur um það
að ræða, að olía spýtist út um hana.
Hún heldur því áfram að líta út
sem ný, gljáandi og glæsileg.
Sameiginlegir hagsmunir gera
það að verkum, að svifflugmenn hafa
mikla ánægju af að hittast, og það
gera þeir á mjög viðkunnalegum
stöðum, svo sem í Sugarbush norð-
ur í Vermontfylki, þegar heppilegt
loftuppstreymi myndast þar oft á
haustin nálægt Grænufjöllum. f
fyrra komu 55 svifflugur þar á vett-
vang. Þær voru víðs vegar að úr
Bandaríkjunum og líka frá Kanada.
Þeim hafði öllum verið komið
snyrtilega fyrir á dráttarvögnum
aftan í bílum, líkt og skemmtibátum.
Fólkið flaug á daginn, og á kvöldin
kom það saman í sveitakránum fyr-
ir framan snarkandi arineld til þess
að ræða um svifflug.
Svifflugmenn þessir voru ekki að
keppa. Þeir vildu bara fá tækifæri
til þess að leika sér í loftinu yfir
hinum litríku fjöllum Nýju Eng-
landsfylkjanna og vera samvístum
við fólk, sem var þeim andlega skylt.
Flugi þeirra virðist alls ekki ljúka,
þegar þeir lenda. Eftir að þeir eru
komnir til jarðar, hafa þeir enn blik
í augum og bros á vör, sem hverfur
ekki svo auðveldlega. Þeir hafa
haldið einir á fund Móður Náttúru
og dýrðlegar sýnir hefur borið fyrir
augu þeirra. Og þeir geta alltaf
haldið aftur á fund Móður Náttúru.
Það er farið að þrengjast um
menn, ekki aðeins í borgum og
bæjum, heldur úti um landsbyggð-
ina. Árnar og hafnirnar hafa spillzt
af úrgangi og eitrazt. En uppi í
tæru loftinu er nóg rými. Þar er
hátt til lofts og vítt til veggja og
nóg olnbogarými, nóg rými til þess
að gefa sig á vald ljóðrænni fegurð-
arnautn og æsandi ævintýrum.
Höfundur greinarinnar, Robert N.
Buck, sem er flugstjóri hjá stóru
flugfélagi, hefur hlotið „Gull C-ið“
fyrir glæsilegan árangur í svifflugi,
sem veitt er samkvæmt reglum, er
settar hafa verið af Fédération
Aéronautique Internationale. Á
merki þessu er einn demantur. Nú
er hann að keppa að æðstu viður-
kenningunni, sem er merki með þrjá
demanta. Það er aðeins veitt eftir
margs konar próf og afrek. Sá, sem
það hlýtur, verður að hafa haldið,
sér á lofti í 5 klukkustundir sam-
fleytt, hann verður að hafa komizt
í 16.450 feta hæð, hann verður að
hafa flogið til viss staðar, sem er
a. m. k. í 187 mílna fjarlægð, og hann
verður að hafa flogið a. m. k. 311
mílna vegalengd í frjálsa stefnu,
þ. e. bara á milli einhverra staða.
Aðeins 65 svifflugmönnum hefur
hlotnazt slík viðurkenning í Banda-
ríkjunum og samtals 500 svifflug-
mönnum í öllum heiminum.