Úrval - 01.05.1967, Blaðsíða 69
67
AÐ ÚTRYMA ORBIRGÐ
mæri gerð þversum og langsum um
eyðimerkurnar algerlega að tilefnis-
lausu, herflokkar farið um lönd
þessara fátæku hirðingja. Tor-
tryggnin var til mesta trafala, fáir
bjuggust við neinu nema illu einu.
Samt fengust fáeinir til að gróður-
setja ólífutrjáplönturnar, vinviðinn,
og tómatplönturnar, sem sendar
voru til þorpanna á stórum vörubil-
um. Nokkrar af hinum yngri konum,
og einkum yngismeyjarnar tóku
feginshendi við saumavélunum, svo
þeim yrði auðveldara að fá sér nýja
flík, en áður höfðu ekki sézt þar
nema þessir litlausu dökku hjúpar,
heimaofnir, sem konurnar erfðu
mann fram af manni.
JASH gafst samt ekki upp. Hvar-
vetna blöstu verkefnin við. Það
þurfti að veita vatni, girða nýju
ávaxtagarðana. Það er illt verk að
taka upp grjót í slíkum hita, bera
til og hlaða í garða.
Stúlkurnar urðu að kosta kennslu
sína í saumaskap. Margar hafa síð-
an keypt sér saumavélar fyrir það
sem þær hafa unnið sér inn með
saumaskap, og allflestar ungar
stúlkur hafa lært að sauma.
Þessi fjögur þorp með fornfáleg-
um húsum, sem áður virtust sofa í
sandauðninni, eru nú vöknuð, og þar
iðar allt og ymur af lífi og starfi,
þar gala gaukar, þar spretta laukar,
saumavélar iða hratt, skröltið í veg-
lagningatækjum kveður við, þar
sem áður var kyrrt og hljótt.
Stjórn Jórdaníu ver því sem af-
gangs er, til nýrra vegagerða. Vegir
eru lagðir alla leið heim að þorp-
unum, en þorpsbúar sjá um vegi
innan þorpanna og heim að húsun-
um. Hverri fjölskyldu er gert að
leggja fram vagnfylli af möl til
vegagerðar. Milii þorpanna gengur
almenningsvagn og símasamband er
milli þeirra.
Stjórn landsins annast einnig um
vatnsleiðslur til þorpanna, svo nú
þurfa konurnar ekki lengur að bera
vatnið um langan veg á höfðinu,
og gefst þeim því nægur tími til
að sinna börnum sínum, á þann
hátt, sem þeim er nú kennt, sauma,
vefa mottur og matreiða. Þeim er
einnig kennt að lesa leiðbeiningar
um saumaskap, matreiðslu og biblí-
una eða kóraninn.
Fleiri og fleiri verða til að leið-
beina fólkinu, og tvö af þorpunum
hafa stofnað stjórnarráð, með leyfi
stjórnarvaldanna. Plantað hefur
verið allt að því 15000 trjám og
150000 tómatjurtir spretta nú þar
sem áður var eyðimörk. Átta hundr-
uð fjölskyldur hafa nú varphænur
og aðra alifugla, bæði til heimilis-
nota og til sölu. Geitin, sem þeir
höfðu og kölluðu baladi, hefur ver-
ið kynbætt með kynblöndun, og
gefur nú miklu meira af sér, meiri
mjólk, meira af kjöti, meira af
hári. Bændurnir kaupa kynbóta-
hafra gegn greiðslu síðar í sam-
vinnuverzlunum sínum, og gjalda
þetta með hinum auknu afurðum.
í fyrsta sinn svo elztu menn muni
hefur fólk þetta nú nóg af græn-
meti, og afgang til að selja. Einn
af bændunum í Simakiya gróður-
setti grænmeti í 40 ekrur, og varð
nettóágóði af þessu 280 dollarar, eða
meira en fjórfaldar árstekjur fjöl-
skyldu að meðaltali.
Tilraun þessari er stjórnað frá