Úrval - 01.05.1967, Side 75
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA AF NÝJA ...
73
stungur við hvert bílastæði, sem má
svo stinga bílnum í samband og
hlaða rafhlöðurnar að nýju.
Það mun líka verða þörf fyrir
betri og léttari bílvélar en þær,
sem nú eru í notkun. Fordverksmiðj -
urnar hafa þegar framleitt eina
slíka vél, sem virðist muni geta orð-
ið hagkvæm. Það er 20 hestafla vél,
sem vegur aðeins 18 pund (20 am.)
þ. e. um fjórðung þess, sem vélar
þær vega, sem nú eru notaðar í raf-
knúnum vörubílum.
Það er augsýnilegt, að þessi nýja
bíltegund verður ekki neinn venju-
legur bíll, þar sem rafhlöður og
rafvél koma í stað benzínvélar. Það
verður þörf fyrir algera byltingu
í gerð bíla og bílvéla. Það getur
t.d. verið, að rafhlöðurnar verði
þunnar og flatar og verði staðsettar
undir gólfi bifreiðarinnar. Þannig
mundi þyngdarpunkturinn lækka og
bíllinn verða stöðugri á vegúm og
öruggari í akstri.
Hugmyndir manna um væntan-
legt útlit rafknúða bílsins eru mjög
á reiki og byggjast eingöngu á get-
gátum. En þó er það hugsanlegt, að
tveir rafknúðir bílar, sem Ford-
verksmiðjurnar hafa byggt í útibúi
sínu í Englandi, geti gefið einhverja
vísbendingu um það, sem koma
skal, en það á einmitt að prófa þá
í akstri nú í vor. Þessir bílar eru
um 6 fet á lengd og hafa nægilegt
rými fyrir tvo fullorðna og tvö börn.
Fordverksmiðjurnar leggja á-
herzlu á, að þarna sé ekki endilega
um að ræða sýnishorn af væntan-
legum rafmagnsbílum, heldur sé hér
bara um að ræða tilraunabíla, sem
smíðaðir hafa verið til þess að rann-
saka og prófa hina rafknúnu vél
þeirra og ganginn í þeim, þ. e. til
þess að hjálpa vélfræðingunum til
þess að sannreyna hvort það verði
t. d. betra að hafa tvær vélar eða
fjórar.
Sodiumbrennisteinsrafhlöðurnar
verða ekki tilbúnar fyrr en eftir
tvö ár, og því eru notaðar venjulegar
blýsýrurafhlöður í tilraunabíla
þessa. Þeir eiga að geta komizt 40
mílna leið á einni rafhleðslu og náð
mest 40 mílna hraða á klukkustund.
Þegar nýju rafhlöðurnar koma svo
til sögunnar, munu þeir komast
a. m. k. fjórfalda þessa vegalengd á
einni hleðslu og hámarkshraði
þeirra mun aukast mjög mikið.
Það verður splukuný reynsla fyr-
ir ökumenn að aka rafmagnsbíl
framtíðarinnar. í mælaborðinu
munu aðeins verða þrír mælar,
hraðamælir, voltmælir og amper-
mælir (straummælir). Voltmælirinn
mun verða eldneytismælir. Hann
mun segja til um rafhlöðuspennu
og hve mikil hleðsla er eftir. Amper-
mælirinn gefur til kynna, með hve
miklum hraða orkan eyðist. Mikil
orka eyðist, þegar hraðinn er auk-
inn skjótlega eða ekið er lengi með
miklum hraða. Ampermælirinn mun
hjálpa ökumanninum til þess að
komast lengra á hleðslunni með
því að hjálpa honum til að forðast,
að mikilli orku sé eytt að óþörfu,
t. d. á ofangreindan hátt.
Þegar ökumaður framtíðarinnar
ekur inn í bílskúrinn sinn á
kvöldin, mun hann opna lok ein-
hvers staðar á bílnum, draga þar
út rafmagnssnúru og stinga tengl-
inum í rafmagnsinnstungu þá, sem