Úrval - 01.05.1967, Qupperneq 93
HIN EINMANALEGU
01
kindurnar inni fyrir tóku að rása
út um það og dreifast í allar áttir.
Vinnumennirnir og fjárhundarnir
voru allir inni í rúningsskýlinu, önn-
um kafnir við að reka kindur inn
í dilkana, svo að rúningsmennirnir
hefðu næg verkefni. Enginn sá því
það, sem gerzt hafði.
Jú, einn hafði tekið eftir þessu.
Það var litli hvolpurinn sem var að-
eins átta vikna gamall. Hann tók á
rás eftir kindunum og gelti og
djöflaðist og fór að reka þær aftur
inn í fjárréttina. Hann skellti
saman skoltunum rétt við hælana
á kindunum, sem hefðu getað spark-
að honum langar leiðir, hefðu þær
þorað það. Og þessu sjálfboðastarfi
sínu hélt hann áfram, þangað til síð-
asta kindin var kominú aftur inn í
fjárréttina. Æst geltið í honum barst
til eyrna verkstjórans, sem kom
loks hlaupandi út. Hann flýtti sér
að loka hliði fjárréttarinnar, og þá
var þetta vandamál úr sögunni.
„Hann verður góður, þegar hann
vex upp“, sagði verkstjórinn bara.
Ég hafði nú fengið staðfestingu á
orðum smalans. Fjárræktarsvæðin
eru heimur út af fyrir sig, og kóng-
urinn, sem þar ríkir, er fjárhund-
urinn.
Við brynjum okkur skel okkur til verndar. En alltof oft kemur það
fyrir, að skelin verður að okkur sjálfum.
Eli Schleifer
Meðallánstimi fasteignalána er um 20 ár, sem veitir eigendanum nægan
tima til þess að koma húsinu í söluhæft ástand, þ. e. a s. ef hann eyðir
öllum helgunum i það.
Gene Brown
Það er svo mikið af því góða i hinum verstu okkar og svo mikið af þvi
illa í hinum beztu okkar, að við þörfnumst laga og trúarbragða handa
okkur ölium.
Louis Nizer
Itödd reynslunnar:
Alex F. Osborn framkvæmdastjóri sagði eitt sinn sögu af gömlum karli
í New Jlampshirefylki, sem sat kvöld eftir kvöld úti fyrir þorpsverzl-
uninni og hafði ekkert fyrir stafni. Þegar hann var eitt sinn spurður
að þvi, hvers vegna hann sæti þarna alltaf, svaraði karlinn: „Bara að
hugsa."
..En hvernig í ósköpunum geturðu hugsað svona rnikið?"
,,Ég skal segja þér það, sonur sæll“, svaraði karlinn unga manninum,
sem birið hafði fram spurninguna. „Það er eins með hugsunina og
syndina. Þeir, sem fremja hana ekki, eru hræddir við hana, en þeir
sem frernja hanu nógu oft, fara að hafa ánægju af henni."
Nevv York Times