Úrval - 01.05.1967, Page 101
MADAME SARAH
99
kom skurður á höfuðleðrið, og úr
sárinu blæddi svo ofsalega, að Sarah,
sem var nú altekin leikrænni iðrun,
reif ræmur neðan af undirpilsum
sínum til þess að binda um sárið.
(Tuttugu árum síðar, þegar vörður-
inn hætti störfum, keypti hún
handa honum smáhýsi norður í
Normandí og stofnaði eftirlauna-
sjóð, sem nægði honum til ævi-
loka).
En það urðu alvarlegri afleið-
ingar af árekstri einum, sem varð
milli hennar og einnar helztu leik-
konu leikhússins. Sarah hafði eitt
sinn tekið Reginu, 9 ára gamla syst-
ur sína (sem var einnig óskilgetin),
með sér að tjaldabaki til þess að
vera þar viðstödd hátíðlega athöfn
til heiðurs fæðingardegi Moliéres.
Því miður tafði Regina litla inn-
göngu einnar helztu af eldri leik-
konunum með því að stíga óvart á
kjólslóða hennar, svo að hún komst
ekki úr sporunum. Þetta var geysi-
stór kona, Maddama Nathalie að
nafni. Hún varð bálvond og hrinti
telpunni nokkuð hastarlega til hlið-
ar, svo að hún fékk skurð á ennið,
er hún skall utan í súlu eina. Litla
telpan benti ásakandi á hina frægu
leikkonu og æpti: „Belja, belja!
(Vache)“ eins hátt og hún gat.
Maddama Nathalie varð alveg óð
af illsku, og skeytti hún nú skapi
sínu á Söru, en Sarah þaggaði fljót-
lega niður í henni með því að slá
hana svo ofsalega utanundir, að
hin fræga leikkona féll í mjög leik-
rænt yfirlið.
Þetta högg skeilti ekki aðeins
Maddame Nathalie um koll, heldur
varð það til þess, að sjálft hið fræga
leikhús riðaði á traustum grunni
sínum. Það hafði aldrei komið þar
fyrir áður, að óreynd leikkona, sem
ráðin hafði verið til reynslu, dirfð-
ist að storka svo einum af helztu
starfsmönnum leikflokksins, hvað
þá beita hann líkamlegu ofbeldi.
Samleikarar Maddömu Nathalie
voru að vísu bálreiðir, en blaða-
mennirnir við dagblöð Parísar voru
alveg í sjöunda himni. Þeir kunnu
sér ekki læti af gleði og kepptu
hver við annan í skoplegum frá-
sögnum af slagsmálunum. Sarah
varð skyndilega sameiginlegt um-
ræðuefni manna á breiðstrætunum.
Þegar Sarah var að æfa næsta
hlutverk sitt, gerði Maddame
Nathalie harða hríð að leikhús-
stjóranum og krafðist þess, að hann
kæmi í veg fyrir, að þessi ósvífni
viðvaningur fengi að koma fram
aftur í leikhúsinu, fyrr en fram
hefði verið borin opinber afsökun-
arbeiðni. Sarah neitaði að verða við
þeim tilmælum, og leikhússtjórinn
átti ekki annarra kosta völ en að
biðja hana að segja starfinu lausu.
Og það fór svo, að hún kom ekki
aftur fram á leiksviði Comédie
Francaise fyrr en að heilum áratug
liðnum.
FYRSTI SIGURINN.
Sarah Bernhardt var að vísu of-
boðslega stolt og þrjózk, en samt
varð það henni mikið áfall að verða
neydd til þess að yfirgefa helzta
leikhús Frakklands. Aðrir leikhús-
stjórar vildu helzt ekki ráða hana
vegna þessa hneykslismáls, og það
var aðeins vegna mikils baktjalda-
makks, að henni tókst loks að fá