Úrval - 01.05.1967, Blaðsíða 108
106
ÚRVAL
þá stakk Jarrett upp ,á 6 mánaða
ferðalagi um Bandaríki Norður-
Ameríku.
„En ég get aðeins leikið á
frönsku“, maldaði Sarah í móinn.
„Góða mín, þér gætuð leikið á
kínversku, og samt mundu Ame-
ríkumenn koma í hrönnum til þess
að sjá yður“, svaraði hann.
Hún yfirgaf Comédie Francaise
ekki tafarlaust, en sáðkorninu hafði
þegar verið sáð í huga hennar. Og
tengsl hennar við leikhúsið slitnuðu
að lokum, þegar stjórnendur þess
neyddu hana til þess að kqma fram
í leikriti, sem henni fannst eiga
mjög illa við hæfileika sína og
vera þar að auki mjög illa æft. Hún
fékk mjög slæma dóma fyrir
frammistöðu sína, þá verstu, sem
hún hafði nokkru sinni fengið, og
þegar hún hafði lesið þá, settist
hún strax niður og skrifaði up.p-
sagnarbréf. Fyrst stefndu hinir
virðulegu stjórnendur Comdéie
Francaise henni, síðan grátbáðu þeir
hana að snúa aftur til leikhússins,
en hún lét allar bænir þeirra og hót-
anir, sem vind um eyrun þjóta.
Leiðin til framtíðar hennar lá nú í
vesturátt, þvert yfir Atlantshafið,
og hún hafði þegar ákveðið að
halda þessa leið.
BERNHARDT í AMERÍKU.
Edward Jarrett flýtti sér til Par-
ísar með samning. í hendinni, strax
og hann frétti, að Sarah væri aftur
orðin laus og liðug. Hann stakk upp
á því, að hún færi í leikferðalag
um Bandaríkin með 8 leikrit, sem
hún skyidi sjálf velja. Hún mátti
einni veija meðleikendur sína sjálf,
og skyldi hún ná þessum leikflokki
saman og stjórna honum jafnframt,
Kjörin, sem hann bauð henni, voru
svo glæsileg, að stórfurðulegt má
telja, þegar reiknað er með kaup-
mætti dollarans á þeim tíma. Hann
tryggði henni 100 sýningar á, fjlg-
urra mánaða tímabili, og skyldi húp
fá 1000 dollara fyrir hverja sýn-
ingu og þar að auki 50% af brúttó-
tekjum hvers kvölds, ef þær næmu
yfir 4000 dollurum. Hún átti að fá
200 dollara aukalega á viku hverri
vegna gistihúsakostnaðar. Hún átti
að ferðast í einkavagni í lestunum
ásamt þjónustufólki sínu, en þar var
um að ræða tvær þjónustustúlkur.
tvo matsveina, þjón, yfirþjón og
hennar stöðuga félaga og. einkarit-
ara, Maddömu Guérard, og. ætluðu
eigendur þessa fyrirtækis einnig að
greiða sjálfir laun alls þessa starfs-
fólks.
Þann 15. október árið 1880 lagði
flokkur Maddömu Söru svo af .stáð
yfir Atlantshafið í fylgd Jarretts.
Þau ferðuðust á gömlum dalli, sem
gekk bæði fyrir gufuafli og segl-
um. Bar hann heitið „Amérique".
Og 12 dögum .síðar varpaði skipið.
akkerum í New Yorkhöfn eftir sér-
staklega erfiða siglingu og vond
veður. Þetta var klukkan 6.30 að
morgni í nístingskulda, og Hudson-
áin var þakin ís. Dráttarbátnum
tókst þó að ryðja sér braut út að
skipinu. Um borð í honum var heil
nefnd krókloppinna , en hugpakkra
embættismanna, fulltrúa, frá .ræð-
ismannsskrifstofum og annarra
mikilsmegandi þegna, sem var kom-
in til þess að bjóða hina frægu leik-
konu velkomna til Nýja heimsins.