Úrval - 01.05.1967, Page 128

Úrval - 01.05.1967, Page 128
126 ÚRVAL Málmar, bergtegundir, kol, sölt, vökvar, loítttegundir og lífræn efni voru skilgreind sem efnasambönd úr ýmsum atómum. Allnákvæmur skilningur fékkst á því, hvernig það er undir hreyfingu mólikúlanna komið hvort hlutur er í föstu, fljót- andi eða loftkenndu ástandi. Eðli hlutanna birtist hinum nýju vís- indum ljóslega og fagurlega með fullkomnu innra samræmi, að því er virtist. Á nítjándu öld var skilningurinn á atóminu ekki kominn öllu lengra en hjá Lúkretíusi, menn hugðu at- ómin vera ódeili, þétt en þó teygj- anleg og hnöttótt, og þó að þekk- ingin á rafmagni og rafsegulmagni væri þá miklu meiri en nafnið tómt, datt fáum eða engum í hug að þar væri að finna lykilinn að leyndar- dómum náttúrunnar. Þá gerðist það um aldamótin síð- ustu, að Röntgen fann X-geislana, og J. J. Thomsen fann rafeindina. Við þetta breyttist viðhorfið til raf- mangsins, og eftir það átti það hinu mikilvægasta hlutverki að gegna við allar atómrannsóknir. Rafeindir reyndust vera 1000 sinnum léttari en hið léttasta atóm, og varð þó ekki umflúið að álíta, að þær væru efni. Á fyrsta fjórðungi þessarar aldar sýndist það ljóst að atóm lík- ist sólkerfi að því leyti, að þau hafa kjarna, tiltölulega þungan, og er þar saman komið nærri allt efnismagn þeirra, en um kjarna þennan þeyt- ast hinar örsmáu rafeindir, sem líkja mætti við plánetur og smástirni í sólkerfi. Þessi hugmynd um atómið hefur orðið lífseig með almenningi. Og var nú ólíku orðið saman að jafna, hinum fyrri hugmyndum um kyrrstætt, blýhart, hnattlaga atóm, og þessu atómi, sem að miklum meirihluta er tómt rúm, en efnis- "" hlutarnir með ýmsu móti. Þeir efnis- hlutar, sem þá voru þekktir, eru nevtrónur, prótónur og elektrónur. Það sannaðist að nevtrónur og prótónur mynda kjarna atómsins. Vatnsefnisatóm hefur eina rafeind, kolefni sex, járn 26 o.s.frv. Af þess- ari nýju mynd atómsins sást, svo ekki varð villzt, að rafmagn er órjúfanlegur þáttur efnisins. Við lok nítjándualdar tókst Max- well og Hertz að sanna, að ljósið er ölduhreyfing sem á upptök í rafmagns- og segulsviði, og að unnt er að framkalla rafsegulöldur með tilraunum. Þetta var undanfari út- varps og ratsjár. Með þvi að breyta hreyfingum rafeinda á braut sinni, mátti gera hverja þeirra að smávegis útvarps- eða rat-sjárstöð, og einn- ig að móttökustöð. Við þetta sann- aðist, að ljósið er órjúfanlegur þátt- ur efnisins. Árið 1925 var sú mynd af atómi, þar sem rafeindir sveiflast umhverf- is kjarna, eins og plánetur um sól, orðin fullmótuð. En nú er sú mynd orðin úrelt, hún gildir ekki fram- ar, því furðulegir hlutir hafa komið fram í dagsljósið. í nýju myndinni af atómi er rafeindin ekki lengur efn- issögn, sem á sér stað, þó lítil sé, heldur er hún orðin að öldum, sem fylla allt atómið frá kjarna til endi- marka. Slík efnissögn getur varla kallazt föst í sér, eins og Lúkretíus hugði, en samt veita rafeindaöld- urnar hver annarri viðnám svo að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.