Úrval - 01.09.1969, Side 24

Úrval - 01.09.1969, Side 24
22 ÚRVAL verða fljótlega dæmi um nútíma- byggingarlist eins og Listasafn rík- isins og Hadassah-sjúkrahúsið. Dýragarðurinn hefur innan sinna veggja hvorki meira né minna en sjö hundruð dýrategundir, og þeirra meðal eru næstum allar hinar 110 tegundir, sem minnzt er á í biblí- unni. Jerúsalem verður enn að teljast lítil borg. íbúartalan er um 270 þúsund og nær ekki tíunda hluta ísraelsmanna allra. Um 200 þúsund íbúa borgarinnar eru Gyðingar. Gizkað er á, að um 12 þúsund þeirra séu kristnir. Sumir borgarhlutarnir hafa yfir sér arabiskan blæ. Tvö helztu strætin, Ben Yehuda og Jaffa Road, minna meira á Bagdað en New York, og ýmsir þjóðlegir réttir eru seldir á götum úti. Arabarnir klæðast „keffiah“, sem er hvítur búningur, bundinn með svartri snúru og heyra má ,,muzzin“ kalla í hátalara frá næsta guðshúsi og minna hina trúuðu á að snúa sér í áttina til Mecca og biðjast fyrir. f „gömlu borginni“ eru margar göturnar ekki breiðari en gang- stéttir, og eru þær krókóttar og mishæðóttar, sumar yfirbyggðar á köflum og minna því á göng. Við hjónin gengum einn daginn eftir El-Bazaar-götu og upp lág yfir- byggð þrep. Á þessum stað voru seld bæði hebrezk og arabisk dag- blöð. í Jerúsalem eru næstum allir ávarpaðir með fornafni sínu. Við vorum að neyta miðdegisverðar með Moshe Dayan varnarmálaráð- herra, þegar bílstjórinn hans birtist í borðsalnum, klappaði Dayan á öxlina og mælti: „Það er komin tími til að fara, Moshe“ Á sumrin er þjóðarvenja að ganga í hvítri skyrtu, opinni í hálsinn. Orðið „Sha- lom“, sem þýðir „friður“, er almenn kveðja. Helgidagar Vikunnar eru þrír: föstudagurinn hjá Múhameðstrúar- mönnum, laugardagur hjá Gyðing- um og sunnudagur hjá kristnum. Sumir ráðherranna hafa stungið upp á að lögleiða fimm daga vinnu- viku, en ekkert komizt áleiðis með það, þar sem aðrir telja, að landinu veiti ekki af, að vinnukrafturinn sé nýttur til hins ýtrasta. Alvarleg afbrot, eins og mann- dráp, eru næstum óþekkt innan borgarinnar, og fátt er um vand- ræðaunglinga. Og hinir svonefndu „hippíar“ fyrirfinnast ekki, — að minnsta kosti ekki enn. „Þetta er vinnandi borg. Fólkið hefur ekki neinn tíma til óspekta“, sagði við mig Theodor Kollek, borgarstjóri í Jerúsalem, en hann gengur undir nafninu Teddy. En viðurkennast verður, að sumir lögreglumenn bera byssur vegna hins stjórnmálalega ástands.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.