Úrval - 01.09.1969, Síða 34

Úrval - 01.09.1969, Síða 34
32 ÚRVAL Hún svaraði ekki. „Það er ekkert á móti því að tjá sig kröftuglega,“ sagði ég, „en athugasemd mín var nú gerð í gamni.“ „Ég brenndi mig á hendinni," sagði Maggie önuglega, „á heitri feiti.“ „Það þykir mér leitt að heyra,“ sagði ég. „Þú ættir að gæta þín, þegar þú ert að eiga við heita elda- vél.“ Við skiptumst á nokkrum fleiri innihaldslausum setningum, og svo fór ég í vinnuna. Yfirleitt trúi ég ekki á tilviljanir, en síðdegis sama dag rakst ég á pappírskilju eina í blaðsöluturni, og mér fannst hún hitta beint í mark. Þar var ekkert verið að klípa utan af hlutunum. Það ríkti friður og ró, þegar ég kom heim. Krakk- arnir voru heima hjá ömmu sinni, en Maggie var að veggfóðra í and- dyrinu. „Halló,“ sagði ég, „hvernig er höndin?“ „Ha?“ sagði hún. „Ó, það er allt í lagi með hana.“ „Ég er með svolítið handa þér, svolitla gjöf.“ Hún stóð uppi í stiga. Hún leit niður til mín. Ég rétti pakkann í áttina til hennar. „Komdu niður.“ „Gjöf?“ spurði hún. Hún þurrk- aði sér um hendurnar á gallabux- unum. „Jæja.“ Hún opnaði pakkann og leit á bókina. „Venus í Donny- brook,“ las hún upphátt, „Leiðbein- ingar í hjónabandserjum“. Hvað í ósköpunum ....“ Hún klifraði aftur upp í stigann. „Nafnið skýrir sig sjálft,“ sagði ég. „Jákvæð rifrildi geta stuðlað mjög að því að skapa heilbrigðari sambúð milli hjóna. En samt ekki, ef maður rífst bara alveg ókerfis- bundið. Sko, samkvæmt bókinni ætti að ákveða vissan tíma fyrir þrætur og rifrildi.“ „Ó, almáttugur,“ sagði Maggie. „Ég veit að þetta virðist vera skrýtið, en þegar maður fer að hugsa betur um það ...“ Ég náði í stól inn í borðstofu og kom með hann fram í anddyrið til hennar, svo ég gæti fengið mér sæti, meðan ég ræddi við hana. „Við skulum taka daginn í dag sem dæmi. Ég varð að fara í vinnuna. Þú hafðir brennt þig á hendinni. Það var ekki hægt að hugsa sér óhentugri tíma fyrir rifrildi.“ „Sagði bókin þér það?“ spurði hún hæðnislega. „Rétt,“ svaraði ég. „En kannske er þetta ekki heldur hentugur tími. Ef þú vildir heldur .. ..“ „Nei,“ svaraði hún. „Það er allt í lagi með tírnann." Hún rúllaði í sundur veggfóðursrúllu á gólfinu og fór að bera lím á hana. „Hann gæti ekki verið betri.“ „Ágætt.“ Ég opnaði bókina. „Það er þýðingarmikið, að rifrildi verði ekki nokkurs konar ruslakarfa fyr»- ir alls konar smávægilegt ergelsi og móðganir, svo að við ættum að byrja á því að ákveða, hvar við stöndum og lýsa því síðan yfir.“ Maggie bar álímdu veggfóðurs- lengjuna upp stigann og fór að líma hana á vegginn við hliðina á skáp- hurðinni. „Það hentar mér vel.“ „Með öðrum orðum, um hvað vilj- um við rífast? Það gæti verið svo margt, hegðun barnanna, ökuvenj- ur, kosnaður heimilishaldsins, við- horf mömmu þinnar — hvað sem
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.