Úrval - 01.09.1969, Side 57
VAXANDI VINSÆLDIR STJÖRNUSPÁDÓMA
55
segir til um, undir hvaða stjörnu-
merki hann er fæddur. Þegar
stjörnuspámaðurinn semur stjörnu-
spá fyrir einhvern, styðst hann við
stjörnuárbók (almanak), sem er
eins konar handbók, þar sem af-
staða reikistjarnanna til jarðar er
gefin fyrir hvern dag liðinna ára
og fram í framtíðina. Kitlandi dul-
arfull merki og tölur eru svo rituð
á þetta hringlaga stjörnuspádóma-
kort, og eru sólin, tunglið og reiki-
stjörnurnar færðar í þá stöðu eða
„hús“, sem þær voru í, þegar per-
sóna sú fæddist, sem verið er að
semja stjörnuspádóm fyrir.
(Stjörnuspámaðurinn verður að
fá að vita, á hvaða mínútu fæðing-
in átti sér stað, til þess að geta
samið algerlega áreiðanlega stjörnu-
spá. Fáir vita slíkt upp á hár, og
þar fæst góð afsökun fyrir því, ef
stjörnuspá reynist ónákvæm á ein-
hvern hátt).
Staða himintunglanna í hinum
ýmsu „húsum“ og afstaða þeirra
hvers til annars er síðan athuguð
nákvæmlega af stjörnuspámannin-
um og tilhlýðileg merking lögð í
það. Sagt er, að hver af hinum
fjórum höfuðskepnum, jarðvegur
loft, eldur og vatn, stjórni vissum
stjörnumerkjum dýrahringsins og
þannig fólki því, sem fætt er undir
þeim merkjum. „Jarðvegsbundið"
fólk hefur tilhneigingu til að vera
miög jarðbundið og hagsýnt og
jafnvel varkárt. „Vatnsfólkið“ hef-
ur breytilega skapgerð, og er vilja-
stvrkur þess stundum veikur. „Loft-
fólkið“ er fjörugt og jafnvel óstöð-
ugt, úthverft og á auðvelt með að
tjá sig. „Eldfólkið" er glaðlegt og
hefur heitar tilfinningar og kennd-
ir til að bera. Sérhvert hús stjórnar
sérstöku lífssviði, svo sem ástinni,
fjármálunum og lífsstarfinu. Það
verður að taka tillit til breytilegr-
ar afstöðu og tengsla í hundraða-
tali, þegar stjörnuspá er saman, og
því segja stjörnuspámenn, að það
sé hin rétta túlkun hinna stjarn-
fræðilegu merkja, sem skilji á milli
hinna hæfu og viðvaningana á
þessu sviði. „Það stendur allt sam-
an hérna,“ segir einn stjörnuspá-
maðurinn. „Og maður þarf ekki
annað en að kunna að lesa úr því.“
ÖRUGGUR SIGURVEGARI f
HERVAGNAAKSTURSKEPPN-
INNI
Sagnfræðingar álíta, að búið hafi
verið að semja fyrstu stjörnuspár
fyrir einstaklinga um 500 árum fyr-
ir Krists burð. Vitneskja á sviði
stjörnuspádóma var hluti þess her-
fangs, sem Alexander mikli flutti
með sér heim til Grikklands eftir
sigur sinn yfir Babylon 330 árum
fyrir Krists burð. Þegar Rómverj-
um voru fyrst kynntir stjörnusná-
dómar um 100 árum fyrir Krists
burð, varð þetta bráðlega eitt
helzta tómstundagaman borgarbúa.
Stjörnuspámenn á Colosseumleik-
vanginum skýrðu mönnum frá ör-
uggum sigurvegurum í hervagna-
aksturskeppninni. (Sagt er, að það
sé stiörnuspámaður einn í Chicago,
spm spái fyrir sigurvegurum í
helztu veðreiðunum með því að út-
bða stjörnuspá fyrir hestana, sem
þátt taka í keppninni. „Og honum
skjátlast sjaldan," var mér sagt, „ef