Úrval - 01.09.1969, Blaðsíða 77
STÓRKOSTLEGASTI SKÝJAKLJÚFURINN
75
um 6, sem þar munu rísa, verður
meira leiguhúsnæði en í öllum 18
byggingum Rockefellermiðstöðvar-
innar eða 9 ekrum meira, og 80
ekrum meira en í stærstu skrifstofu-
byggingu heims, Pentagonbygging-
unni í Washington.
Heimsviðskiptamiðstöðin verður í
rauninni eins konar „alheimsrisa-
kjörbúð“ fyrir innflytjendur og út-
flytjendur, þar sem hægt er að
semja um sölu á hverju sem er
hvaðan sem það kemur. Stór fyrir
tæki, sem hafa sérmenntaða við-
skiptafræðinga í þjónustu sinni,
hafa lengi haft góðan hagnað af al-
heimsviðskiptum. En minni fyrir-
tæki hafa yfirleitt veigrað sér við
að hætta sér út í svo yfirgripsmikil
viðskipti. Það hefur reynzt of erfitt
fyrir þau að komast til botns í öllum
þeim flækjum og rata á réttu leið-
irnar. Heimviðskiptamiðstöðin á að
kippa því öllu í lag með því að gera
kaupendum og seljendum hvers
konar varnings hvaðanæva að úr
veröldinni auðveldara með að hitt-
ast og finna það, sem þeir eru að
leita að hverju sinni; einnig með
því að veita tafarlausar upplýsing-
ar um markaðsmöguleika og tækni-
legar kröfur hverju sinni. Heim-
viðskiptamiðstöðin mun einnig veita
mönnum alveg sérstakt tækifæri til
þess að skoða ýmsar bandarískar og
erlendar vörur, sem verða þar stöð-
ugt til sýnis.
Við skulum fara í skoðunarferð
með leiðsögumanni um þetta furðu-
lega og flókna bákn, en það mun
verða flutt inn í nokkurn hluta þess
þegár á næsta ári. Fyrst skulum við
reika um skemmtigarð miðstöðvar-
innar. Þar er um að ræða 5 ekru
torg með blómum, gosbrunnum og
höggmyndum. Og svo skulum við
snúa okkur að risabyggingunni
sjálfri. Þar er um að ræða 2 turna og
4 lágar (8 hæðir) byggingar. 50.000
manna munu vinna í Heimsvið-
skiptamiðstöðinni, og önnur 80.000
munu koma þangað daglega. Þar
verður gistihús með 600 herbergjum
og nógu mörg veitingahús til þess,
að 20.000 manns geti snætt þar sam-
tímis. Verzlanir? Þar verður hægt
að kaupa næstum hvað sem er i
alls konar verzlunum, sem taka yfir
samtals 8 ekrur fyrir neðan torgið.
Á 6 neðanjarðarhæðum verð.ur
nægilegt rými fyrir 2000 bíla,
geymslur og alls konar vélaútbúnað
fyrir þetta risabákn.
AÐ TÆMA BAÐKERIÐ
Áætlunin um þessa risavöxnu
framkvæmd kom fram árið 1960.
Félagsskapurinn „The Downtown
Lower Manhattan Association“, eins
konar undirverzlunarráð fyrir neðri
hluta Manhattaneyjar, ákvað, að
viðskiptamiðstöð, svipuð þeim, sem
höfðu verið reistar, var verið að
reisa eða átti að reisa í New Orleans,
Seattle og Rotterdam, mundi auka
alþjóðleg viðskipti í New York og
hjálpa til þess að hleypa nýju lífi
í borgarhluta, sem var í stöðugt
vaxandi niðurníðslu. Það var eng-
um vafa bundið, hvert bezt væri
að snúa sér til þess að fá aðstoð í
þessu efni, þ.e. til Hafnarráðs New
York-. Samtök þessi voru stofnuð
af löggjafarþingum New York- og
New Jerseyfylkja árið 1921 til þess
að hleypa auknu lífi í verzlun og