Úrval - 01.09.1969, Síða 78
76
ÚRVAL
viðskipti þar í fylkjunum. Hafnar-
ráðið hefur séð um að hrinda í
framkvæmd 23 áætlunum um ýmiss
konar risamannvirki, svo sem Ge-
orge Washingtonbrúna yfir Hud-
sonfljótið, Hollandsgöngin undir
sama fljót, og Kennedyflugvöllinn
úti á Lönguey. Ráðið gefur út sín
eigin skuldabréf, sem eru svo seld
og standa undir alls konar stórfram-
kvæmdum, sem síðan geta staðið á
eigin fótum og kosta skattgreiðend-
ur ekki neitt.
Hafnarráðið náði eignarhaldi á
svæði við Hudsonána, neðarlega á
Manhattaneyju. Það náði yfir 13
götur, en flest húsin við þær voru
mjög hrörleg og í örgustu niður-
níðslu, enda voru 60% þeirra yfir
aldargömul. Og árið 1966 hófust svo
byggingarframkvæmdirnar. Verk-
fræðingar vissu, að þeir mundu eiga
við mikla erfiðleika að etja allt frá
byrjun. Svæðið var alveg vatnsósa,
enda var þar um að ræða land, sem
unnið hafði verið úr greipum Hud-
sonárinnar á löngum tíma með því
að staðsetja þar öskuhauga og aka
þangað uppgreftri úr húsagrunnum.
Fyrir rúmum þrem öldum lögðu
hollenzkir loðskinnakaupmenn jafn-
an skipun sínum við akkeri á ein-
mitt þessum stað. Mennirnir, sem
unnu við grunn þessa verðandi risa-
bákns, urðu fyrst að grafa sig í
gegnum alla ruslahauganna, síðan
gegnum gamla árbotninn og niður í
fasta klöpp 70 fetum neðar. En
héldu þeir áfram að grafa og grafa,
mundi sjórinn seitla inn í grunninn
úr Hudsonfljótinu, því að það var
aðeins einni götulengd í burtu. Dæl-
urnar gætu örugglega ekki haft
undan vegna stöðugt vatnsflaums.
Til allrar hamingju höfðu ítalskir
verkfræðingar þá fundið upp að-
ferð til þess að ráða bug á erfiðleik-
um, sem skapast við slíkar aðstæð-
ur. Aðferðin er fólgin í því að fyrst
er grafinn risavaxinn skurður í
kringum allt byggingarsvæðið, al-
veg niður í klöpp. Og skurður þessi
er jafnóðum fylltur af hálffljótandi
leirkvoðu, sem er samt nægilega
þykk til þess að bægja vatninu frá.
Síðan er steinsteypu dælt niður á
botn skurðsins. Við það lyftist leir-
kvoðan, og er henni safnað saman
aftur, svo að hægt sé að nota hana
í næsta hluta. Þessi risavaxni alls-
herjarveggur, sem myndaðist þann-
ig og umlukti allt byggingarsvæðið
kostaði 8 milljónir dollara. Það má
segja, að hafnarsvæðið hafi þá
breytzt í risavaxið baðker.
Svo hófst vinnan við að tæma
baðkerið síðla árs 1967. Það er einn
mesti uppmokstur, sem nokkru
sinni hefur verið framkvæmdur. En
hvernig á að losna við 1.200.000
rúmyarda af rusli, leir, mold, möl
og grjóti? Það hefði orðið ofboðs-
lega dýrt að aka því langar leiðir.
Því voru rekin niður stálþil úti í
Hudsonánni. Og þannig myndaðist
risavaxinn ferhyrningur afgirtur.
Þangað var öllu draslinu ekið á
vörubílum. Og þannig var búið til
nýtt „land“, sem var hvorki meira
né minna en 23 ekrur að stærð.
Þessi gjöf New Yorkborgar til handa
var 90 milljón dollar virði.
En nú varð að koma geysilegri
flækju af alls konar leiðslum fyrir
á heppilegum stöðum á nýjan leik,