Úrval - 01.09.1969, Qupperneq 80
78
ÚRVAL
Reynt var að nota sem minnst af
rýminu undir lyftugöng, og því voru
ekki hafðar lyftur, sem ganga alla
leið upp eftir endilöngum skýja-
kljúfnum, heldur er farið í áföng-
um, þannig að hver skýjakljúfur er
á vissan hátt samsettur úr þrem
skýjakljúfum, hverjum upp af öðr-
um með „himinanddyrum“ á 44. og
78. hæð. Vilji maður t.d. fara upp á
50. hæð fer maður i hraðlyftu upp á
44. hæð og skiptir þar um lyftu og
fer yfir í hæggengari lyftu. Þannig
verða þrjár lyftur í gangi í sömu
lyftugöngunum, þ.e. hver upp af
annarri. Fyrst er það ein, sem gegn-
ur af 1. upp á 43. hæð. Næsta gegn-
ur svo af 44. upp á 77. hæð og svo
sú þriðja af 78. upp á 110. hæð. Að-
eins þrjár lyftur munu fara alla
leið upp í hvorum skýjakljúf. Vegna
þessa fyrirkomulags fara aðeins
13% rýmisins undir lyftugöng fyrir
þær 104 lyftur, sem eru í hvorum
turninum. En 23% hefðu farið undir
lyftugöng, hefði verið notað eldra
fyrirkomulag.
Þetta risavaxna lóðrétta flutn-
ingakerfi mun flytja kvartmilljón
farþega á dag. Það mun stjórnast af
tölvu til þess að draga sem mest úr
biðtíma og tryggja að hægt sé að
komast á hvaða stað sem er í hvor-
um turni innan tveggja mínútna.
Hraðlyftur, sem eru helmingi stærri
en þær, sem nú tíðkast, en ganga
jafnframt eins hratt og þær hröð-
ust, munu taka 55 farþega.
„Heimilishaldið“ í þessari risa-
vöxnu miðstöð verður ofboðslega
stórt í sniðum. Hvernig á t.d. að
þvo þá 21.800 glugga, sem eru í
hvorum turni? Sjálfvirk glugga-
þvottavél, sem er nýbúið að finna
upp, mun renna hratt niður eftir
turnhliðunum á teinum, sem eru
innbyggðir í hliðarnar, og mun
hreinsa glugga á 5 hæðum á braut
sinni á mínútu hverri. Bursti með
hringhreyfingum mun skrúbba, og
svampur mun svo þurrka. Upp-
þvottavatnið sogast aftur inn í kerf-
ið, er síðan hreinsað og notað aftur
og aftur.
VINDAR OG VAGG
Stálgrindin í Norðurturninum er
að fikra sig upp á við núna, og
einnig er stálgrindin í Suðurturn-
inum lögð af stað upp á við. Stál-
bitarnir vega allt að 56 tonnum eða
jafnmikið og lítil eimreið. Og þeim
er lyft á sinn stað með stórkostlega
snjöllum „kengúrukrönum“, sem
fluttir hafa verið inn frá Ástralíu.
Einn krani er við hvert horn á innra
kjarna hvors turns. Þegar stálvinnu
á einni hæð er lokið, lyfta kranarn-
ir sér sjálfir upp á næstu hæð á
„vökvadrifsfótum". Þegar stálvinn-
unni allri er lokið, mun einn kran-
inn láta hina þrjá síga niður til
jarðar. Svo mun fjórði kraninn
verða tekinn sundur og bútarnir
látnir síga niður eftir lyftu göngum.
Taka þurfti tillit til vindþungans
við áætlanagerð þessara risaturna.
Annars hefðu snarpar vindhviður
ef til vill getað splundrað rúðum.
Til öryggis hafa arkitektarnir fyrir-
skipað notkun sérstaks herts glers,
sem er 8 sinnum sterkara en venju-
legt rúðugler. Turnarnir sjálfir eru
þannig byggðir, að þeir eiga að
þola miklu sterkari vinda en menn