Úrval - 01.09.1969, Síða 101

Úrval - 01.09.1969, Síða 101
BARNI LINDBERGS RÆNT 99 inn, hvort hann hefði séð þessar nælur fyrr. „Sængurföt barnsins voru næld saman með öryggisnælurn,“ svaraði maðurinn. Af þessu svari sannfærðist Con- don og bað hinn að segja til nafns síns. „John.“ „Komið með mér, John,“ sagði Condon einlæglega. „Ég hef sjálf- ur þúsund dali, og þér skuluð fá þá.“ „Við viljum ekki peningana yð- ar,“ anzaði John. Condon notaði nú tækifærið til að spyrja, hverjir þessir „við“ væru. John svaraði, að hann væri einung- is milligöngumaður. Það væru fimm aðrir viðriðnir. „Leysið frá skjóðunni, John,“ bað gamli maðurinn. „Ég skal fá Lindberg til að hjálpa yður eftir fremsta megni, ef þér viljið losna úr þessum félagsskap. Annars verð- ið þér tekinn fastur.“ „Nei,“ svaraði John af sannfær- ingu. „Við erum búnir að undir- búa þetta í heilt ár.“ Það hafði kólnað enn meir. John færði sig órólegur til á bekknum og sagðist ætla að fara núna og bætti við, að Condon hefði átt að hafa peningana með. Rétt eftir að John fór sína leið lofaði hann að færa Condon sönnur á, að hann stæði í sambandi við barnsræningjana. „Ég skal senda yður náttslopp drengsins," sagði hann. Mennirnir tveir tókust í hendur. Eftir andartak var John horfinn út í myrkrið. NÝ FRAMVINDA MÁLSINS Það liðu aðeins tveir dagar, þar til Condon fékk sendan böggul með náttslopp drengsins, og Lindberg leit á það sem sönnun þess, að saka- mennirnir treystu gamla kennaran- um fyllilega. Og Lindberg taldi nú, að. hlutirnir ættu að geta gengið hratt fyrir sig. En áður en vikan var úti, komu til sögunnar tveir markverðir at- burðir, sem bentu til hins gagn- stæða. í bréfi, sem fylgdi með nátt- sloppnum, var þess krafizt, að Lindberg staðfesti, að hann væri reiðubúinn til að greiða lausnarféð, áður en hann fengi að sjá barnið. Féllist Lindberg á þetta, átti hann að setja svohljóðandi orðsendingu í „New York American“: „Ég sam- þykki. Peningarnir eru tilbúnir." Lindberg var nú orðinn sann- færður um, að ekki væru svik í tafli og féllst á þetta, og dag eftir dag birtist orðsendingin í blaðinu. En John lét ekkert frá sér heyra. Nú barst úr óvæntri átt vitneskja um nýja stefnu málsins. John Hug- hes Curris, sem var þekktur maður í bænum Norfolk í Virginiu, til- kynnti Lindberg, að hann stæði í beinu sambandi við barnsræningj - ana. Þegar Curtis ók til Hopewell hinn 22. marz, voru með honum tveir þekktir og virtir heiðursmenn, nefnilega H. Dobson-Peacock pró- fastur frá Norfolk, en hann hafði kynnzt föður Önnu í Mexikó, en hinn maðurinn var Guy Burrage undir-sjóliðsforingi, skipstjóri her- skipsins, sem flutt hafði Lindberg
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.