Úrval - 01.10.1970, Blaðsíða 6

Úrval - 01.10.1970, Blaðsíða 6
4 i- SK* *± smásögur .uni . stormenm NIELS BOHR, hinn heimskunni, danski vísindamaður, var gaman- samur í betra lagi, og eru margar skopsögur af honum sagðar. Hér á eftir fer ein þeirra: Eitt sinn hitti maður nokkur Ni- els Bohr í samkvæmi og gat ekki látið hjá líða að spyrja þennan heimsfræga vísindamann „vísinda- legrar“ spurningar. Spurningin var á þessa leið: — Er það rétt, sem ég hef lesið, að tíu vetnissprengjur nægi til þess að tortíma jörðinni? Prófessorinn horfði eitthvað út í bláinn og sagði lágt eins og hann væri að tala við sjálfan sig: — Getur staðið heima, — en jörðin er nú líka ein af minnstu r eikist j örnunum. BJÖRN GUNNLAUGSSON var einstakur maður að gáfum og at- gerfi, en mjög viðutan. Hann var kennari í Bessastaðaskóla, eins og kunnugt er, og ókvæntur framan af ævi. Samkennarar hans og vinir ýttu mjög undir hann að fá sér konu, og þótti þeim helzt ráð að bera niður hjá Ragnheiði í Sviðholti, ekkju Jóns lektors, enda var hún vel að sér og vinfengi mikið á milli hennar og Björns. Kom Björn oft í heimsókn til hennar og hafði mikla ánægju af að tala við hana. Nú kom að því, að vinir Björns höfðu talið hann á að bera upp bónorðið við Ragnheiði og fór hann að Sviðholti í þeim erindagjörðum. Hann sat drykklanga stund og rabbaði um alla heima og geima, en ekkert varð af bónorðinu. Þegar hann hafði kvatt og var kominn heim á leið, rankaði hann við sér og mundi loks eftir því, að hann hafði gleymt sjálfu aðalat- riðinu. Hann snýr þá að Sviðholti aftur, hittir Ragnheiði og segir: — Heyrið þér, frú Ragnheiður! Viljið þér eiga mig? — Já, segir hún. — Jæja, þakka yður kærlega fyrir. Verið þér svo sælar, sagði Björn, setti á sig hattinn og fór. HOLBERG vildi neyða nábúa sinn til þess að drepa hana sinn, því að hani þessi hafði oftar en einu sinni raskað næturró skáldsins. Nábúinn svaraði: —• Ef Holberg barón getur þjón- að hænunni á sama hátt og han- inn, þá er það ekki nema sjálfsagt. FRANSKI glæpasagnahöfundurinn Georges Simenon sagði eitt sinn í spaugi við blaðamann, sem var að eiga viðtal við hann:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.