Úrval - 01.10.1970, Qupperneq 17
NÝ VITNESKJA UM TUNGLIÐ
15
upp. Ástæðan er ef til vill sú, að
þeir eiga nú aðild að fæðingu nýrr-
ar vísindagreinar og það er alls
ekki víst, að snyrtilega orðaðar
kenningar og reglur, sem gilda um
jarðfræði jurtarinnar, komi að
gagni á tunglinu. En nú hefur tungl-
ið verið fært niður til jarðarinnar,
þar sem vísindamenn geta rann-
sakað það að vild í næði. Og svo
kann að fara, að fyrr eða síðar
muni dyr allra þess leyndardóma
upp lj úkast.
Forstöðumenn fyrirtækis eins áttu í miklum erfiðleikum með að fá
starfsmennina til þess að leggja fram tillögur um ýmislegt, er gæti
dregið úr rekstrarkostnaði fyrirtækisins. En þeir erfiðleikar leystust
dag einn, þegar þeir buðu alveg sérstök verðlaun þeim til handa, sem
kæmi fram með „Beztu tillögu mánaðarins11. Verðlaunin voru réttur til
30 daga afnota af eftirsóttu bílastæði við hliðina á stæðinu fyrir bíl
forstjórans. Fjöldi nýrra sparnaðartillagna jókst skyndilega um 40%.
Exe-u-Scope.
Það er eitt gott við apríl... Veðrið fer að hlýna, einmitt um það
leyti sem skattstjórinn rýir þig inn að skyrtunni.
Ashley Cooper.
Mágur minn reynir allt mögulegt til þess að komast hjá því að hjálpa
til við heimilisstörfin. Ekkert hefur haft nein áhrif, bvorki nöldur eða
jag eiginkonunnar, blíðmæli eða jafnvel minni háttar hótanir. Nýlega
hélt systir mín, að hún hefði fundið áhrifarika lausn. Hún hengdi upp
örk á áberandi stað, og fyrirsögnin var þessi: „Listi yfir það, sem gera
þarf.“ Eftir að listinn hafði hangið þarna í viku án nokkurra áhrifa, tók
hún eftir þvi, að á hann hafði verið bætt þessum lið: „Athuga líkur á
því, hvort næsta eiginkona muni útbúa lista yfir það, sem gera þarf.“
Sandra J. Bangham.
Lítill krakki horfir á köngurló spinna vef sinn og hrópar skyndilega
upp yfir sig: „Sjáðu, mamma! Hún er að rakna upp!“
Fimm ára snáði gefur eftirfarandi skýringu á líðan sinni fyrstu flug-
ferðina: „Ég var með svolítinn skýjabút i báðum eyrum, en þegar ég
geispaði, duttu þeir úr."
Skilti við ínngönguhlið dýragarðs: „Foreldrar, haldið litlu ófreskjun-
um ykkar frá stóru ófreskjunum okkar.“
Nágranni minn gleypir við hverju nýju tízkufyrirbrigði. Hann skokkar
fimm mílur alveg möglunarlaust til þess að halda sér í góðri þjálfun, en
ekur svo fimm götulengdir í vinnuna.