Úrval - 01.10.1970, Síða 22
20
TJRVAL
bókina aí annarri með upplýsingum
og athugasemdum, sem hún færir
í þær með sinni örsmáu rithönd.
(Eitt einkenni hinnar vitsmunalega
þroskuðu og andlega sinnuðu fjöl-
skyldu hennar var það, að konurn-
ar innan hennar færðu stöðugt upp-
lýsingar og athugasemdir hver um
aðra inn í minnisbækur sínar.
Amma hennar skráði þar til dæmis
allt það, er olli barnabörnunum
sorgar og gleði á uppvaxtarárun-
um. Móðir hennar beindi þroska
þeirra í réttan farveg. Og Margaret
sjálf var ekki nema átta ára, þegar
hún hófst handa við að skrá hjá sér
athuganir sínar á málvenjum yngri
systra sinna). Við Sepikána á Nýju-
Guineu reisti hún veggjalaust hús
ásamt þáverandi manni sínum,
mannfræðingnum Gregory Bateson.
Þetta gerðu þau, svo að ekkert, sem
fram fór umhverfis þau, færi fram
hjá þeim.
Margaret Mead er nú svo vinsæl
meðal Manusættbálksins á Nýju-
Guineu, að henni er tekið þar með
slíkum kostum og kynjum, að helzt
minnir á mestu knattspyrnuhetju
liðs, sem borið hefur sigur af hólmi
í harðri knattspyrnukeppni. Vest-
ræn tækni hefur nú tekið að ryðja
sér til rúms á Nýju-Guineu. Og í
síðustu heimsókn hennar þangað
árið 1967 hópuðust hinir innfæddu
umhverfis hana og spurðu hana,
hvort hún hefði komið með segul-
bandstæki með sér. Þegar þeim var
sagt, að það hefði hún gert, buðust
þeir strax til þess að syngja og
lemja trétrumbur sínar, svo að hún
gæti tekið það upp á segulbandið.
MÁLSVARI UNGU
K YN SLÓÐ ARINNAR
Margaret Mead er líka í miklu
uppáhaldi hjá æskufólki. Það styð-
ur hana ákaft. Hún er á sömu
bylgjulengd og það. Myndir af
henni eru hengdar upp í fjölda
kaffihúsa í Austurþorpi í lista-
mannahverfinu Greenwich Village
í New Yorkborg (á veggspjöldum,
þar sem mælt er með því, að notk-
un marijuana verði gerð lögleg).
Hún er líka mjög eftirsótt í háskól-
unum sem fyrirlesari. Og hún er
ráðgjafi þeirrar skrifstofu Innan-
ríkisráðuneytisins, sem fjallar um
„ æskulýðshreyfingar‘ ‘. Lj ósmyndar-
inn Ken Heyman, sem hefur unnið
með henni í fjórum rannsóknarleið-
öngrum, var nýlega rekinn út úr
skólastofu við Kaliforníuháskóla í
Santa Cruz. En hann fékk fljótlega
aðgang að nýju, þegar hann fékk
tóm til þess að útskýra, að hann
væri að vinna þarna að rannsókn-
aráætlun með Margaret Mead.
Hún neitar því, að „hún tilheyri
hinum ungu“, en hún notar ungu
kynslóðina sem eins konar tónkvísl
fyrir hugmyndir sínar. Unga kyn-
slóðin er auðvitað harðánægð með
alla þá athygli, sem Margaret Mead
veitir henni. Hún sér í anda heim,
þar sem hinir ungu geta átt þýð-
ingarmiklu hlutverki að gegna.
Breytingar á siðferðisviðhorfi, vax-
andi óvissa, hvað snertir kynhlut-
verk kynjanna, vetnis- og kjarn-
orkusprengjan, upplausnin í borg-
unum, mengun og eyðing Móður
Náttúru og alls umhverfis okkar,
geimferðir, tölvunotkun, áhrif sjón-
varps og þotuflugs, sem draga