Úrval - 01.10.1970, Blaðsíða 57
FANGAHJÁLP SEM BER ÁRANGUR
55
ara. „Þið getið séð, hvílíkar fúlgur
sjálfboðaliðar okkar geta sparað
ríki, fylki og skattborgurum", segir
hann, þegar það er haft í huga,
að fangelsisdvöl hvers fanga kostar
Washingtonfylki 4500 dollara á ári.
Þar að auki kostar framfærsla konu
hans og barna aðra 4500 dollara.
Takist okkur til dæmis að halda 100
giftum mönnum og 200 ógiftum frá
fangelsunum, sparast þar með yfir
milljón dollarar á ári“.
Ýmsir helztu embættismenn
Washingtonfylkis styðja starfsemi
Simmons af heilum huga. Daniel J.
Evans fylkisstjóri hefur þetta að
segja um hana: „Hún borgar sig á
þrennan hátt: Hinum fyrrverandi
afbrotamanni er hiálpað til þess að
verða nytsamur borgari. Það spar-
ast mikið. fé fyrir skattborgarann.
Og sjálfboðaliðinn sjálfur verður
betri maður en ella“.
Viðleitni Vinnulækningar hf.,
undir forystu sjálfboðaliðanna, er
í samræmi við þá skoðun, sem virð-
ist vera að vaxa fylgi um gervallt
landið; þ.e. að alls konar stofnanir,
nefndir og embættismenn á æðri
stigum ríkis- og fylkisstiórnar af-
reki lítið á sviði þjóðfélagslegra
endurbóta og að það sé ekki skrif-
finnurinn, heldur hinn ábyrgi borg-
ari, sem verði að knýja þær fram.
Fyrrverandi svartur fangi í fang-
elsinu í Monroe, sem nú er blaða-
maður í Seattle, hefur þetta að
segia um starfsemi þessa: „Hefði ég
ekki notið hvíta stuðningsmannsins
míns við, væri ég nú líklega her-
skár, reiður baráttumaður innan
réttindabaráttu blökkumannanna.
Ég held, að svipuð starfsemi, svip-
uð viðleitni mundi einnig heppnast
í svörtu fátækrahverfunum.... og
reyndar hvar sem fólk vill leggja
sig fram um að sýna öðru fólki, að
það láti sig það einhverju máli
skipta sem einstaklinga. Ég á við,
að það láti sig það raunverulega
einhverju máli skipta“.
BORGARAR, ÞAÐ ER ÞÖRF
FYRIR AÐSTOÐ YKKAR!
Myrl E. Alexander, er.hefur ný-
lega hætt störfum fyrir aldurs sak-
ir sem forstöðumaður Fangelsis-
málastofnunar Bandaríkjanna, hef-
ur þetta að segja um starfsemi
þessa:
Hin óskaplega einangrun banda-
rískra fanga frá aðalfarvegi þjóð-
félagsins hefur átt sinn þátt í, að
réttarfarslegu markmiði í sakamál-
um hefur ekki verið náð: þ.e. fækk-
un glæpa með því að beina afbrota-
mönnum á rétta braut, frá saknæmri
hegðun til viðurkenndrar og gagn-
legrar hegðunar. Þetta er nú viður-
kennt, og því er nú verið að endur-
skoða algerlega það kerfi betrunar-
aðferða, sem notaðar eru. Verið er
að gera áætlanir um nýjar mennt-
unar- og starfsþjálfunarleiðir fyrir
fangana, auk aukinnar ráðgjafa-
starfsemi. Verið er smám saman
að mynda ný tengsl fanganna við
þjóðfélagið utan fangelsismúranna.
Þar má nefna það, að fangar séu
látnir lausir um skemmri eða lengri
tíma til þess að. vinna utan fang-
elsisins, nám þeirra í nálægum skól-
um, leyfi úr fangelsinu og nýja teg-
und fangelsa, þar sem fangarnir
hafa nokkurt frelsi og eru ekki
fangar nema á vissan hátt, vinna