Úrval - 01.10.1970, Page 76
74
3. Láttu hann umfram allt ekki
hreyfa sig úr stólnum.
Hrausti íþróttamaðurinn, sem þú
giftist, eyðir nú mestöllum degi sín-
um í stól. Takmark þitt er að letja
hann, í hvert sinn er hann vill
breyta út af þessum langsetuvenj-
um sínum. Hann hvílist hvorki á
því að sitja né fær hann þannig
nokkra líkamshreyfingu. Og hvíld-
in og hreyfingin mundu hvor um
sig bæta mörgum árum við líf hans.
Líkamleg hreyfing er alveg hræði-
lega gagnleg fyrir heilsu eigin-
manns þíns. Hæfileg líkamshreyf-
ing og þjálfun eykur ekki matar-
lyst hans að ráði og hjálpar til
þess að halda líkamsþunga hans í
skefjum. Slíkt getur einnig lækkað
cholesterolmagnið í blóði hans,
dregið úr blóðþrýstingnum og jafn-
vel aukið blórásina í hjartanu. Slíkt
hefur það í för með sér, að enda
þótt aðalkransæðin sé stífluð, geta
aðrar blóðæðar opnazt betur, svo
að hjartað fái samt nægilegt blóð
og hann haldi áfram að lifa og þú
verðir þannig af þínu verðskuldaða
frelsi.
Ef hann sýnir þannig nokkra
löngun til þess að fara í göngu með
krökkunum, skaltu í öllum bænum
minna hann á knattspyrnukeppnina
í sjónvarpinu. Þú skalt stöðugt hæð-
ast að öllum uppástungum um, að
maður á hans aldri ætti að reyna
að synda, leika tennis, klifra fjöll,
læra á skíðum, fara að leika hand-
knattleik eða hreyfa nokkra vöðva
á einhvern annan hátt. Vilji hann
samt endilega leika golf, þá skaltu
sýna honum það stórkostlega ör-
ÚRVAL
læti að gefa honum vélknúinn golf-
vallarbíl.
4. Eldu hann á gnægff af mett-
aðri dýrafitu.
Það er margt, sem virðist sanna,
að mataræði, sem í er mikið af
mettaðri fitu, (kjötfitu, grænmetis-
olíu og smjöri) auki cholesterol-
magn blóðsins. En mikið cholester-
olmagn getur aukið líkurnar á því,
að hann deyi úr kransæðasjúkdóm-
um. Aftur á móti getur ómettuð
fita dregið úr cholesterolmagni
blóðsins, en hana er að finna í rík-
um mæli í saffflowerolíu, kornolíu,
vissri tegund smjörlíkis og fiski. Þú
skalt því flýta fyrir brottför hans
með því að ala hann á nógu af
mettuðum fituefnum. Veldu handa
honum kjöt, sem nóg er af fitu á
(það er mjúkt, og honum mun finn-
ast það mjög Ijúffengt), og gefðu
honum nóg af því. (Það mun auka
ást hans til þín).
Þú skalt aldrei baka eða glóðar-
steikja, þegar þú getur steikt í fitu.
Og notaðu þá alltaf smjör eða mett-
aða fitu. Gefðu honum nóg af
steiktum, frönskum kartöflum eða
brúnuðum kartöflujafningi og
steiktum eggjum. Það er mikið
cholesterolmagn í eggjum. Þau eru
holl fyrir þig og börnin. En sé
þeirra neytt í ríkum mæli daglega,
munu þau stórauka cholesterol-
magnið í blóð eiginmannsins. Það
er einnig hægt að nota egg í fjöl-
marga eftirrétti.
5. Vendu hann á mikið saltaðan
mat.
Það er ýmislegt, sem bendir til
þess, að mikið saltmagn í mat
framkalli of háan blóðþrýsting hjá