Úrval - 01.10.1970, Page 96

Úrval - 01.10.1970, Page 96
94 ÚRVAL á segulbönd og kvikmyndir alla þá „svefnherbergisatburði“, sem gerð- ust í aðliggjandi íbúð. RÚSSNESKU „SKYTTURNAR“ ÞRJÁR Kunavin boðaði Krotkov á nýjan fund, tveim dögum eftir að hann hafði skýrt honum frá hinni nýju áætlun. Þar veitti hann honum ýtar- legri upplýsingar. „Sendiherrann sjálfur er hið endanlega takmark,“ sagði Kunavin, „en við höfum líka áhuga á aðstoðarflugmálaráðu- nautinum við sendiráðið, Louis Gui- baud ofursta. Þitt viðfangsefni er frú Dejean. Þú verður að ná tangar- haldi á henni, þannig að hún verði okkar. Þú verður að ná réttum tök- um á henni í rúminu.“ Þetta var hin venjulega bardagaaðferð KGB. Ef hægt var að ná tökum á eiginkonun- um, varð miklu auðveldara að kom- ast að eiginmönnunum með þeirra hjálp. Ef tókst að fá bæði eiginmann og eiginkonu til samstarfs, var hægt að gera þau að áhrifaríku tæki, sem nota mátti til landráðastarfsemi af ýmsu tagi. Kunavin varaði Krotkov við því, að vel gæti svo farið, að hann skildi ekki alltaf ástæðuna fyrir þeim fyr- irskipunum, sem honum yrðu gefn- ar. „Þetta er samræmd árás. Aðrir munu fást við sendiherrann, meðan þú ert að koma þér í mjúkinn hjá frú Dejean. En allir þættirnir munu falla saman, þegar rétti tíminn kem- ur. Þú skalt bara sjá til. Við höfum nefnilega dálítið alveg sérstakt í hyggju.“ Kunavin lagði hvað eftir annað áherzlu á nauðsyn þess að rasa ekki um ráð fram, að fara hægt að öllu og sýna jafnan fyllstu varkárni. Hann sagði, að það væri geysilega þýðingarmikið, að öll tengsl, sem KGB-menn mynduðu við Frakkana, virtust alveg eðlileg, en ekki skipu- lögð fyrir fram. „Eitt atriði er okkur í hag,“ sagði hann máli sínu til skýr- ingar. „Dejean er í raun og veru að reyna að leysa starf sitt sem sendi- herra mjög vel af hendi. Hann vill komast í tengsl við almenning, og eiginkona hans er að reyna að hjálpa honum í því efni. Hann vill af heil- um hug vingast við sovézka borg- ara.“ Kunavin skellti upp úr. „Jæja, við skulum sýna honum það ósvikið, hversu vingjarnlegar stúlkurnar okkar geta orðið.“ Kunavin ræddi ýtarlega um ævi- feril sendiherrans og eiginkonu hans og persónuleika þeirra og daglegt líf.'Oft vitnaði hann til samtala, sem hleruð höfðu verið með aðstoð so- vézkra leynihljóðnema. „Hún er enginn bjáni,“ sagði Kunavin í að- vörunarrómi. „Hún fylgist stöðugt með sendiherranum og reynir að vernda hann. Það er ein önnur ástæða þess, að við verðum að ná tangarhaldi á henni.“ Nokkrum dögum síðar kynnti Kunavin Krotkov fyrir samvinnu- njósnara einum á vegum KGB, sem valinn hafði verið til þess að tæla Ginette Guibaud, eiginkonu franska aðstoðarmálafulltrúans, til fylgilags við sig. Hann hét Misha Orlov, leik- ari og söngvari, sem var í geysilegu uppáhaldi hjá táningum í Moskvu. Hann var geysistórvaxinn og líktist helzt sígauna. Var hann oft notaður til þess að tæla erlendar konur. Á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.