Úrval - 01.10.1970, Page 104
102
ÚRVAL
sér alls ekki dælt við hann. Lydia
kom sér æ meira í mjúkinn hjá frú
Dejean og sló henni oft gullhamra.
Þær urðu smám saman svo góðar
vinkonur, að þær föðmuðust jafnan,
er þær hittust, þótt Lydia tæki jafn-
fram á móti sendiherranum í ein-
rúmi af mikilli blíðu og ástúð.
ÁÆTLUNINNI BREYTT
í maí árið 1958 fékk sóknaráætl-
unin gegn Frökkum í Moskvu geysi-
lega aukið mikilvægi í augum KGB-
manna. Sovézkir njósnarar í París
skýrðu frá því, að einhvern tíma á
næstu vikum yrði Charles de Gaulle
næstum örugglega gerður að forsæt-
isráðherra Frakklands. KGB-menn
gerðu ráð fyrir því, að Dejean væri
enn náinn samstarfsmaður de Gaull-
es. Og því álitu þeir, að möguleikar
hans á því að komast í áhrifamikla
stjórnarstöðu væru nú miklu meiri
en áður. „Þessi áætlun var alltaf
mikilvæg frá byrjun,“ sagði Kuna-
vin sigrihrósandi við Krotkov. „En
núna er hún samt orðin tífalt mik-
ilvægari.“
Dejeanhjónin voru einnig glöð yf-
ir þróun mála heima í Frakklandi,
þegar Krotkov hitti þau í sendiráð-
inu í júní. Dejean skálaði með til-
þrifum fjrrir de Gaulle og hinu
nýja dýrðartímabili Frakklands,
sem hann hafði lofað Frökkum. De-
jean vék að vísu aldrei að persónu-
legum tengslum sínum við hershöfð-
ingjann, en vafalaust hefur hann
álitið, að skipan hershöfðingjans í
æðsta embætti iandsins boðaði einn-
ig nýtt tímabil fyrir hann og frama
hans.
Krotkov bjóst nú við, að KGB
mundi bráðlega loka gildrunni, sem
Dejean hafði verið ginntur í. Því
varð hann alveg steinhissa, þegar
Kunavin tilkynnti honum: „Við
verðum að láta Lydiu draga sig í
hlé. Hún getur ekki tekið frekari
þátt í framkvæmd áætlunarinnar.“
„Hvað ertu að segja?“ hrópaði
Krotkov upp yfir sig.
„Okkur hafa orðið á mistök,“
sagði Kunavin rólega. „Við verðum
að hafa eiginmann með í spilinu,
eigi framkvæmd áætlunarinriar að
heppnast. Dejean verður að trúa því,
að stúlkan, sem gerist ástmær hans,
sé gift, ef það á að takast, sem við
höfum í hyggju. Því miður var eig-
inmaður Lydiu fremur velþekktur í
París, og það eru nokkrir í franska
sendiráðinu hérna, sem vita það lík-
lega, að þau eru skilin.“
„Hvers vegna í fjandanum datt
engum þetta í hug fyrr?“ hrópaði
Krotkov bálreiður.
„Það þýðir ekkert að sýta bað
núna,“ svaraði Kunavin. „Mergur-
inn málsins er, að við verðtim að
byrja alveg upp á nýtt,“
Kunavin tilkynnti Lydiu, að hún
yrði að slíta tengsl sín við Dejean.
Síðan hófu þeir Gribanov upp-
fræðslu eftirrennara hennar, sem
var Larissa Kronberg-Sobolevskaya,
er var kölluð Lora. Þeir skýrðu
henni frá öllum. málavöxtum, svo að
hún gerði sér grein fyrir öllum að-
stæðum. KGB-menn sömdu nýja
,,ævisögu“ fyrir hana. Átti hún að
vera kvikmyndaleikkona, er væri
gift jarðfræðingi. Hún hafði útskýrt
ástæðuna fyrir fjarveru hans með
því að segja Dejeanhjónunum, að
starf hans gerði það að verkum, að