Úrval - 01.10.1970, Side 110

Úrval - 01.10.1970, Side 110
108 ÚRVAL daga eins og köttur að mús. Hann sagði, að beiðnir hefðu verið lagðar fram um, að málið yrði þaggað nið- ur, en eiginmaðurinn væri þver og ósanngjarn. Hann sagði, að það gæti brugðið til beggja vona, hvernig málinu lyktaði. Einn daginn sleppti hann svo sendiherranum af öngiin- um. „Þetta kostaði mjög mikla fyr- irhöfn, en ég held, að okkur hafi tekizt að fá manninn til þess að þegja til þess að skaða ekki sam- skipti Sovétríkjanna og Frakk- lands,“ sagði hann. „Þetta verður því í lagi, svo framarlega sem hann skiptir ekki um skoðun.“ Á ÞRÖSKULDI LANDRÁÐANNA KGB vottaði Krotkov viðurkenn- ingu sína fyrir vel unnin störf við óvenjulegan og stórglæsilegan einkahádegisverð, sem haldinn var honum til heiðurs á Aragviveitinga- húsinu. Kunavin, sem bar sjálfur orðu Rauðu stjörnunnar, og Mel- kumyan bauð hann velkominn. Og svo fóru þeir félagarnir þrír að rifja upp atburðina í Dejeanáætluninni, líkt og rosknir hershöfðingjar, sem eru að rekja gang mikillar og sigur- sællar orrustu. Að hádegisverðinum loknum stóð Melkumyan á fætur og flutti eftirfarandi ávarp: „Fram- kvæmd áætlunarinnar var eitt snjallasta afrek, sem öryggismála- stofnanirnar hafa nokkru sinni leyst af hendi. Það er vafasamt, að okkur hefði tekizt að ná takmarkinu án þíns mikilvæga framlags, Yury Vasilyevich.“ Melkumyan þagnaði og dró gull- úr upp úr vasa sínum. Það var einn- ig með gullarmbandi. (KGB hafði gert það upptækt hjá útlendingi ein- um). „Mér er það ánægja að færa þér þessa gjöf fyrir hönd Ríkisör- yggisnefndar Ráðherraráðs Sam- bands sovézkra sósíalskra lýðvelda,“ sagði hann við Krotkov. „Þú skalt skoða það sem tákn um þakkjæti okkar fyrir starf þitt í þágu ætt- jarðarinnar. Okkur þykir bara leitt, að við getum ekki látið grafa á það ástæðuna fyrir þessum virðingar- votti.“ Er hér var komið máli, gerðu allir helztu þátttakendurnir sér grein fyrir mikilvægi sóknaráætlunar KGB gegn sendiherranum. Leynd- armálið, sem þeir Dejean og Griban- ov áttu sín á milli, myndaði alveg sérstök persónuleg tengsl þeirra í milli. Sendiherrann var hershöfð- ingjanum innilega þakklátur, og honum fannst sem hann stæði í mik- illi þakkarskuld við hann. KGB- menn gátu nú bara beðið, þangað til Dejean fengi þá háu stöðu, sem þeir álitu, að hann hlyti brátt að fá í París. Fyrr ætluðu þeir ekki að fara fram á neina greiðslu þessarar leyndu skuldar. En þeir ætluðu ekki heldur að flana að neinu, þegar þar að kæmi, heldur fara hægt í sakirn- ar í fyrstu. Gribanov átti þá að fara kurteislega fram á það við Dejean, að hann gerði sér smágreiða fyrir fyrri greiða, sem honum hafði verið gerður, Og Dejean stæði svo ber- skjaldaðri gegn frekari kröfum, eft- ir að hann hefði einu sinni unnið fyrir hagsmuni erlends ríkis, þ.e. með því að gera þennan smágreiða. Þannig mundi einn greiðinn leiða til annars, áður en hann vissi af, og svo til annars, þangað til Dejean
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.