Úrval - 01.10.1970, Side 112

Úrval - 01.10.1970, Side 112
ÚRVAL iló Hún tók sér leigubíl til skrifstofu hans, sem var nálægt sendiráðinu. Og þar fann hún eiginmann sinn liggjandi í blóði sínu á gólfinu rétt við skrifborðið með skammbyssu sér við hlið. Sent var eftir Dejean, og lá hún enn á hnjánum hjá líkinu, þegar hann kom á vettvang. Hún snökti og strauk kinn mannsins síns í sífellu. í nokkrar mínútur ollu fréttirnar um dauða hans algerri skelfingu innan 2. aðaldeildar KGB. KGB- menn óttuðust það mjög, að Gui- baud hefði skýrt frá þvingununum, sem hann hafði verið beittur, eða að hann hefði skilið eftir skriflega frá- sögn, áður en hann dó. En þeim varð rórra, þegar njósnarar höfðu komizt að því, að svo var ekki. Þeir dreifðu með leynd slúðursögum víðs vegar meðal erlendra sendiráðs- starfsmanna þess efnis, að Guibaud ofursti hefði verið veikur maður, sem hefði skotið sig vegna sjúklegs þunglyndis. Ginette yfirgaf Moskvu í síðasta sinni, er hún fylgdi líki mannsins síns, þegar það var flutt heim til Parísar. Hún var svartklædd eins og hæfði tilefninu, er hún hélt burt með lík mannsins, sem hafði heldur kosið að láta lífið en að láta yndan þvingunum KGB. Og að því loknu tóku KGB-menn upp þráðinn að nýju og héldu áfram umsátri sínu um sendiráðið. ÞAGNARLOFORÐ Eftir sjálfsmorð Guibauds urðu KGB-menn næstum algerlega ör- uggir um, að þeim mundi um síðir takast að hremma Dejean. Þau Vera, Melkumyan og jafnvel Gribanov töluðu án allrar leyndar um hann sem „vininn okkar“. Vera talaði hreykin um þann mikla ávinning, sem KGB mundi hafa af þessari fjárfestingu, eftir að Dejean hefði tekið við hárri stöðu í París. En samsærið, sem skipulagt hafði verið af slíkri snilld og unnið hafði verið að af svo mikilli atorku árum sam- an, var reyndar alveg dauðadæmt. Ástæðan var sú, að Yuri Vasilyevich Krotkov hafði ákveðið að skýra Vesturveldunum frá því. Dauði Guidbauds ofursta var ekki sjálfsmorð í augum Krotkovs heldur morð. Það neyddi hann til þess að taka ákvörðun, sem hann hafði mánuðum saman verið að hugsa um að taka, en samt ekki getað tekið. Hann langaði til þess að segja skilið við þetta líf vesælla skrifa, stöðugra svika og andlegrar eymdar. Hann byrjaði af mikilli leynd að skrá sögu lífs síns sem njósnara KGB og taka myndir af skýrslum þessum á ör- filmur. Þ. 2. september árið 1963 kom hann til Lundúna ásamt hópi sovézkra rithöfunda og annarra listamanna. Ellefu dögum síðar strauk hann frá hópnum. Bretar skýrðu Frökkum og Bandaríkjamönnum mjög fljótlega frá þessum furðulegu uppljóstrun- um hans, vegna þess að þær gáfu til- efni til alvarlegra vangavelta, er snertu allar þessar þrjár þjóðir. Var Krotkov að segja satt? Ef svo væri, hafði KGB ef til vill þegar tekizt að fá Dejean til einhvers konar sam- starfs? Eða var Krotkov í rauninni enn KGB-njósnari, sem sendur hafði verið á vettvang til þess að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.