Úrval - 01.10.1970, Síða 127

Úrval - 01.10.1970, Síða 127
VATNSDALSÁ ..., 125 12 og 16 punda, án þess að missa einn einasta. Ég kærði mig ekki um fleiri og settist niður að bíða eftir majórnum ofan úr Hólakvörn. Hér gafst mér tóm til að hug- leiða árangurinn af þeirri ró og ná- kvæmni, sem ég beitti við veiðarn- ar þennan morgun. Það var ekkert fum, og engin óþarfa reynsla, og litla flugan hafði haldið bæði fast og vel, jafnvel á þessum hættulegu lokasprettum. Þetta var náttúrlega mest að þakka fiskunum sjálfum. Allir tóku þeir fluguna á snúningn- um, flestir í miðjum straumi. Þeir tóku rólega og ákveðið, sáust greini- lega, þegar þeir stungu sér á flug- una og komu tæpast upp úr vatns- skorpunni. Ég brá ekki við þeim, heldur beið þess að finna þá taka í, og festi þá öngulinn með hliðarátaki eins og ég framast gat. Síðdegis í Hólakvörn breytti við- horfi mínu dálítið. Hún er eins frá- brugðin Hnausakvísl og hugsazt getur. Hún er rétt neðan við Flóðið, og er lítill hylur, á að gizka 15 metra breiður, og sextíu til sjötíu metra langur, og hvergi meira en tveir metrar á dýpt, og straumurinn hæg- ur og lygn. Fiskar stanza vel í kvörninni, maður getur séð þá greinilega ofan af hólunum, og ef logn er þá sjást þeir jafnvel af bakkanum. Ef sæmilegur vindgári er á vatÉninu er auðvelt að ná hér fiski, en í blankalogni getur það verið mjög erfitt. Það var blæjalogn, þegar ég kom að kvörninni, en ég ákvað að breyta í engu veiðiaðferð minni frá þv:í um morguninn, nema í því að standa álengdar og fara varlega til að styggja ekki. Tveir fiskar eltu fluguna og glefsuðu eftir henni efst í hylnum, en ég fann fyrir hvorug- um. Neðst í hylnum setti ég svo í fisk, sem trylltist bókstaflega. Hann stökk og rásaði og stökk og rásaði aftur um allan hylinn, hvernig sem ég reyndi að hemja hann. Aðrir fiskar busluðu og skutust burtu frá honum í allar áttir, og ristu vatns- flötinn og einn stökk hátt í loft upp. Hann vildi ekki fara úr hyln- um og ég gat ekki teymt hann upp eftir í áttina að Flóðinu. Þá loks- ins ég náði valdi á honum, landaði ég honum neðan við hylinn. Ég hvíldi hylinn, reyndi aftur og missti tvo fiska, með stuttu milli- bili. Þá reyndi ég þurrflugu og byrj- aði neðst í hylnum. Fiskarnir risu við henni, skutust undir hana og byltu sér eftir að hún var farin framhjá. Einn fiskur kom mjög skemmtilega langt að, lét sakka undir henni í þriggja eða fjögurra feta fjarlægð en sneri svo við. Að lokum varð ég að sætta mig við, að þeir tækju hana ekki, þó ég þykist viss um, að hún hefði reynzt vel við lítilsháttar breyttar aðstæður. Hólakvörnin nær ekki einum tí- unda hluta af breidd árinnar á þess- um stað. Afgangurinn er grunnar lænur og strengir að undantekinni mjórri rás fimm feta djúpri yfir undir hinum bakkanum, en hún kallast Bjarnastaðakvörn, og þar stanzar fiskur sæmilega. Ég leitaði tvisvar að henni, en vissi aldrei hvort ég var að fiska í hylnum eða hvort ég stæði úti í honum miðj- um, svo að ég gafst upp og átti ekki meira við þan nveiðistað.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.