Goðasteinn - 01.03.1965, Side 13

Goðasteinn - 01.03.1965, Side 13
hækkandi tii 1831 upp í 21 hundrað. Nú mundi slíkur bóndi, skuldlaus, ckki talinn á náðum hins opinbera. Minning Þuríðar Jónsdóttur, Kcldum: ,,.... Þuríður sál. var atgerfiskona hin mesta og leysti störf sín sem húsmóðir prýði- lega af hendi. I heimilisstjórninni, sem hún hafði á hendi í 45 ár, kom hvarvctna fram stök regluscmi svo í smáu sem í stóru, enda var heimili hennar, eins í þessu sem í öðru, fyrirmyndar- heimili. Umgengni hennar og dagfar var hið friðsamlegasta. - Manni sínum var hún hin bezta stoð í elli hans og börnum sín- um hin umhyggjusamasta móðir til hins síðasta. En félagið má og sakna hennar einnig, vegna þcss að hún lagði um mörg ár mikinn skerf til almenningsþarfa og síðast, en ekki sízt, fyrir hin góðu áhrif, sem hún hafði á aðra. Það má því með sanni segja, að hér sé góð og merk kona til moldar gengin, og þegar verður getið nýtra sæmdarkvenna þessa lands, má nefna nafn Þuríðar frá Keldum“. (Þjóðólfur 1899, bls. 17). Höfundur er sr, Skúli Skúlason í Odda. Sem vænta mátti af honum, er hér ekki um fjas eða orlof að tala. Keldum 29. marz 1933. Goðasteinn tclur sér happ að hafa fcngið þennan fróðleiksþátt til birtingar. Höfundur hans, Skúli á Keldum (f. 25. nóv. 1862, d. 1. júní 1946), var í senn merkur hóndi og fræðimaður. Islenzk menning stendur í þakkarskuld við hann. Engum er það fremur að þakka, að Keldnaskálinn, sú þjóðar- gersemi, er enn uppi standandi. Skúli var kvæntur Svanborgu Lýðsdóttur frá Hlíð, mikilhæfri konu. Fyrir þeim og börnum þeirra er gerð grein í bókinni Keldur, Rvk. 1949, cftir Vigfús Guðmundsson fræðimann, og í íslenzkum æviskrám eftir dr. Pál Eggert Ólason. Goðasteinn 11

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.