Goðasteinn - 01.03.1965, Síða 30

Goðasteinn - 01.03.1965, Síða 30
III Kamphóll heitir, sem fyrr segir, fremsti hóllinn. Norðan við hann er ós fram úr Oddaflóðum. En sunnan við hólinn hafa falhð álar úr Þverá eða Eystri Rangá og sorfið graslendið sitt á hvað, svo að nú er ekki nema svipur hjá sjón hið fagra engi, sem fyrr var á þessum slóðum. Undir Kamphói, sunnanverðum, stóð bærinn Kampastaðir, Oddahjáieiga farin í eyði fyrir mörgum öldum. „Eydd af reim- leika“ segir Jarðabók Átna Magnússonar. Þar með er saga þessa býlis sögð, allt annað gleymt og grafið fyrir löngu, tíu - eða fleiri - kynslóðir bænda, sem þar hafa búið, sagan af draugn- um, sem kannske drap fólkiö og lagði allt í auðn, og bæjar- rústin sjálf að mestu. Á þriðja áratug þessarar aldar hremmdi á- gengur áll úr Þverá meira en helming þeirra. Nú sér þar ekki annað rústa en fáein veggjabrot, sigin og sundurtroðin. Af þeim verður ekki ráðið, hvaða hús, né til hverra nota, stóðu þar eitthvert sinn á horfinni öld. Reglulega ferhyrndur reitur blasir þarna enn við augum, líklega heygarður, fremur en fjárrétt eða laukagarður. Fáein túngarðsbrot finnast enn í kringum Kampastaði, og drjúgan spöl þaðan, skammt frá Skiphól, mótar enn fyrir tveim- ur akurgerðum. Líklegt má þykja, að þau hafa verið frá þess- um bæ, fremur en Oddastað sjálfum, svo langt, sem er þar í milli. IV í Oddahverfi lifir enn þessi þjóðsaga: Eitt sinn á sólheiðum sumardegi reið prestskona, sem þá bjó í Odda, út yfir Rangá, neðan Bjólu, einhverra erinda. Þegar frúin reið fram hjá Kamp- hói, sá hún framan í hólbrekkunni breidd móti sólu átján ný- þvegin mjólkurtrog. Þau átti huldukona sem bjó stórbúi í hóln- um. Þetta mun fáum þykja sennileg saga. Þó getur hún geymt ósvikna arfsögn um málnytu á Kampastöðum. Útibú eða sel- stöð frá Odda hefði verið vel sett á þessum stað, enda líklegt, að sú hafi verið byrjun bæjar. Þarna var afskekkt, skjólgott og skammt í haga. 28 Goðasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.