Goðasteinn - 01.03.1965, Side 32

Goðasteinn - 01.03.1965, Side 32
]ón R. Hjálmarsson: Dagur var að kvöldi. k.ominn hinn 30. desember 1964, dvöl mín í Lo1 Angeles var á enda, og ég hraðaði mér til járn- brautarstöðvarinnar. Það var gott að setjast niður í þægilegum lestarklefa cg hvílast. Dagarnir í þessari margbreytilegu stór- borg við Kyrrahaf höfðu liðiö hratt, og ég hafði notað tím- ann, sem bezt ég kunni, til þess að skoða sem flesta merkis- staði. En borgrn er afar stór, eða yfir 600 ferkm að flatarmáli, og íbúafjöldi hennar hátt í þrjár milljónir. Borgarbúar hafa framfæri sitt af margskonar iðnaði, verzlun cg samgöngum. í Suður-Kaliforniu er aldinrækt afar mikil, því vel hagar hér til fyrir hana, sakir hins milda og sólauðga veðurfars. Þá er hér einnig að, finna mikið magn olíu í jörðu. Getur víða að líta öflugar dælur, sem hamast dag og nótt við að draga hið fljót- andi gull upp úr unditdjúpunum. Sérstök iðngrein hefur orðið afar umfangsmikil héi. Það ei skemmtanaiðnaðurinn. Hér eru framleiddar flestar kvikmyndir í Bandaríkjunum, og á' heims^ markaðinum mun meira en tveir þriðju hlutar allra kvikmynda iofa meistara sína í Los Angeles, eða öllu heldur í Hollywood, sem er hér ein af mörgum útborgum. f Hollywood er afar frægt 30 Goðastemn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.