Goðasteinn - 01.03.1965, Side 40

Goðasteinn - 01.03.1965, Side 40
og á stöku stað bar þungan nið þess til eyrna. Þarna heldur áin áfram þrotlausu starfi sínu við að mala niður forngrýtið mélinu smærra. Það hljómaði sem skröksaga, en samt er það satt, að Koloradoáin flytur um gljúfrin hálfa milljón tonna af sandi á sólarhring. Er ég stóð þarna á gilbarminum og hug- leiddi, að smíði þessa furðuverks hafði staðið yfir í meira en átta milljónir ára, hvarflaði að mér, hversu skammvinn væri mannsævin í samanburði við þann óratíma, svo sem eitt andar- tak. Minntist ég þá ljóðlínu úr þjóðsöngnum okkar: „Fyrir þér cr cinn dagur sem þúsund ár“. Hér í Miklagili hefur náttúran lengst af unnið að mynda- smíð sinni ótrufluð af mannaferðum. Þótt sannað þyki, að mann- verur hafi lifað hér á jörðu meira en milljón ár, þá er skamm- ur tími liöinn, síðan þær sáu fyrst Miklagil. Elztu minjar um mannlíf á þessum slóðum eru aðeins 3500 ára gamlar. Voru það Indíánar, sem hófu byggð í gilinu og í grennd við það. Hafa þeir síðan óslitið átt þar heima til þessa dags. Sumir þessara gilbúa hafa orðið fyrir litlum áhrifum hvítra manna og lifa líkt og forfeður þeirra um aldaraðir. Fyrsti hvíti maðurinn, sem leit augum þessi hrikalegu gljúfur og undraðist stórum, var spænski landkönnuðurinn Cardenas, ár- ið 1540. Síðan kom enginn af hinum hvíta kynþætti hingað, fyrr cn á 19. öld. Árið 1857 kom hingað sendimaður Bandaríkja- stjórnar, Ives að nafni. Bar hann staðnum illa söguna og taldi gagnslausa eyðimörk. Nokkru síðar, eða árið 1869, fór John W. Powell og félagar hans á báti niður alla Koloradoána, eftir gljúfrunum endilöngum. Var þetta hin mesta háskaför en afar árangursrík. Upp frá því tóku ferðamenn og náttúruskoðendur að leggja leið sína á þessar slóðir í vaxandi mæli, og árið 1919 var Miklagil gert að þjóðgarði. Dagurinn leið, fyrr en varði. Um miðaftansleytið kcm ég aft- ur til þorpsins úr kynnisferðum mínum. Þar gafst mér tækifæri til að horfa á Indíána af Hópí-ættkvíslinni sýna dansa sína. Voru þeir skrautlega búnir, prýddir fjöðrum og afar mikið mál- aðir í andliti, samkvæmt fornum siðum. Síðan snæddi ég há- tíðarmáltíð, í tilefni dagsins, ásamt nokkrum ferðafélögum mín- 38 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.