Goðasteinn - 01.03.1965, Page 45

Goðasteinn - 01.03.1965, Page 45
Jón Sigurðsson á Manubakka Lítil fvrðasaga Það var bjart veður, kaldi af norðri og frost talsvert þann 20. des. 1909, þegar ég, að fengnu leyfi húsbónda míns, Lofts Jónssonar á Höfðabrekku í Mýrdal, lagði upp þaðan í ferð heim. Mig langaði að dvelja yfir hátíðarnar hjá foreldrum mínum á Maríubakka í Fljótshverfi. Ég var þá 16 ára og 8 vikum betur, um það í meðallagi að vexti og dugnaði, léttur á fæti og kapps- fullur nokkuð - væri því að skipta. Þannig stóð á veru minni á Höfðabrekku, að mér var komið þangað um tíma að nema orgelspil hjá Lofti, er í senn var góður organisti, og ágætur söngmaður. í alla staði líkaði mér vel á Höfðabrekku þann tíma, er ég dvaldi þar, er alls varð 18 vikur. Loftur og Þórunn kona hans voru mér einkar góð og notaleg, sem og heimilisfólkið allt, er vildi mér vel. Minnist ég því veru minnar þar með hlýjum hug. Þann umgetna dag (20. des.) var jörð auð að kalla, lágsveit- is, en fjöll og hæðir sem á jökul sæi. Daginn cg nóttina næst á undan var norðanstormur og bylur á Mýrdalssandi að sjá frá Goðasteinn 45

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.