Goðasteinn - 01.03.1965, Side 51

Goðasteinn - 01.03.1965, Side 51
og tekizt það að þessu. Það ættir þú einnig að gera, nafni minn“, sagði Jón og bætti svo við: „Þú ert ungur enn og iítt reyndur í skóla lífsins, þú mátt því gæta vel að þér, sérdeilis meðan þú ert að venjast nokkuð lífinu. Ég veit þetta af eigin reynslu, tala við þig sem eldri maður og af vinarhug“, Margt sagði Jón fleira í þessum dúr, og man ég það enn ílest eða allt. Jón var rómsterkur, hafði dálítið óvenjulegar áherzlur á orðum og setningum, svo mál hans festist vel í minni mínu. Hann var einn glæsilegasti maður, sem ég hef séð, að Hannesi Haf- stein cinum undanskildum. Hann var höfðinglegur í sjón og virðulegur í framkomu, með hæstu mönnum og þrekinn að sama skapi, einkum um herðar, enda talinn vel tveggja manna maki að afli og snarmenni. Sóttu fáir gull í greipar hans í glímu, sem þá var mikið iðkuð sern aðalskemmtun ungra manna. Öll per- sóna Jóns á Klaustrinu minnti í mínum augum mjög á frækn- ustu fornmenn vora. Hann var beinn í baki, léttur í viðvikum, andlitið í senn frítt og göfugmannlegt. Að sama skapi var hann drengilegur og djarfur í framkomu, lét skoðanir sínar óhikað í Ijós og færði rök fyrir máli sínu. Jón og Sigurveig kona hans voru rómuð fyrir hjartahlýju og hjálpsemi. Naut margur fá- tækur góðs af efnum þeirra. Ekki áttu þau þó auð í búi, kom- ust vel af, sem kallað er. Bú þeirra gaf góðan arð, því vel var um húsdýrin hugsað, eins og þau báru með sér. Jón var orðlagður söngmaður, hafði mikla og fagra tenór- rödd. Á mannfundum var hann hrókur alls fagnaðar og var þar fremstur í flokki að halda uppi söng. Því var það síðar um kvöldið, þegar ítekningu og gegningum var lokið og Sig- urður sonur Jóns lcominn heim, að Jón stakk upp á því, að við gengjum til kirkju og tækjum lagið. Sigurður var á aldur við mi.g og á líku reki í söngmenntinni, gat spilað léttari sálmalög á orgel. Jón kvaðst líka hafa gaman af að vita, hvað ég gæti í þeim efnum. Þótti mér óvænlega horfa, vissi mig vankunnandi, ákvað þó að láta á engu bera en gera mitt bezta. Það bjarg- aði mér að ég var laus við feiiur, sem oft há unglingum. Jón var um margra ára skeið forsöngvari í kirkju sinni og tók þar við af tengdaföður sínum, Sigurði Nikulássyni. Goðasteinn 49

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.