Goðasteinn - 01.03.1965, Side 56

Goðasteinn - 01.03.1965, Side 56
mer í mítti. Sjálfsagt hefur þetta verið eitthvert hundavað, erl cngin gata til að glöggva sig á. Kalt fannst mér vatnið, en ég hafði fötin mín þurr, og það var fyrir mestu. Ég híddi mig sem fljótast í spjarirnar og hljóp síðan upp að Þykkvabæ. Voru víða auðir rimar og rindar á þeirri leið. í syðri bænum á Þykkvabæ bjuggu þá sómahjónin Páll Sig- urðsson og Margrét Elíasdóttir. Pál þekkti ég. Hann hafði vikið hlýlega að mér, og börn eru fljót að finna, hvort að þeirn snýr handarbak eða lófi. Til hans stefndi ég för minni til að fá leið- beiningu austur yfir Landbrotsvötn. Ég hitti Pál, þar sem hann var að gefa á lambhús heima á túni. Páll tók mér vel en taldi vandkvæði á að komast yfir vötnin fyrr en næsta dag, sökum vatnsrennslis eftir leysinguna en ótryggur ís undir. Svo bætti hann við: „Þú gerir þig rólegan hjá mér tii morguns, og þá skal ég sjá til þín austur yfir. Enn eru þrír dagar til jóla en ekki nema dagleið heim til þín eða varla það, eftir því sem ég sá, að þér miðaði áfram áðan“. Um leið leit Páll til lofts og bætti við: „Ég hugsa, að veður haldist við sama“. Ég sá, að þetta var heillaráð og tók boði Páls með þökkum, þótt hugurinn stefndi heim. Gott hugsaði ég til þess að gista hjá Páli og hans ágætu konu, sem tók á móti mér með móðurlegri um- hyggju og kærleika. Börn þeirra léku við mig og sýndu mér gullin sín. Mér var gert allt til geðs á þessu blessaða heimili. Jólagleðin gekk þarna í garð hjá mér og fylgdi mér heim. Enn þann dag í dag, 55 árum seinna, bý ég að áhrifunum frá þessu kvöldi og bið því fólki góðs, sem gladdi mig þá. Næst! dagur rann upp bjartur og fagur. Blæjalogn var á og dálítið frost. Indælla skammdegisveður varð ekki ákosið. Urn kl. 10 lagði ég upp í síðasta áfangann. Tengdafaðir Páls, Elías Gissurarson, gekk með mér að vötnunum. Hann var nokkuð við aldur en ern og hraustlegur að sjá. Hann var ræðinn og fræddi mig um eitt og annað. Hafði ég gaman af að ræða við hann. Einu sinni, síðar á ævinni, hafði ég gott af að minnast orða hans. Sannaðist þar, að „oft er það gott, er gamlir kveða“. Allt vatn var nú hlaupið ofan af ísnum á Landbrotsvötnun- um, en víða var hann með götum, sem vatnið vall og ólgaði í. 54 Goðastehvi

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.