Goðasteinn - 01.03.1965, Side 67

Goðasteinn - 01.03.1965, Side 67
fann þá ekki. Fór hann áfram austur á mýrarnar og komst loks að Mýrum og lagðist þar niður við túngarðinn. Um þetta ferða- lag nýtur að öllu við frásagnar Jóns. Nú var komið fram yfir miðjan dag á skírdag. Veðri var svo háttað á skírdagsmorgun, að bylur var, þétt kóf með jörðu en sá öðru hvoru ofan á bæi, upp úr kófinu. Veður fór batnandi, er kom fram á daginn, og var það orðið gott, er Jón kom að Mýrum. Þegar þetta skeði, var prestur á Mýrum sr. Bjarni Einarsson, Bjarnasonar frá Hrífunesi. Kona hans var Guðrún Runólfsdóttir frá Holti á Síðu. Svo var ástatt á Mýrum, að enginn karlmað- ur var heima við, prestur hafði farið til messugjörðar að Þykkva- bæjarklaustri, en vinnumenn voru við fénaðarhirðingu frá bæ. Þegar heimafólk sá, að maðurinn barst fyrir utan túngarðs, sendi frú Guðrún eina vinnukonu sína, Guðlaugu Árnadóttur, að vita, hvernig á því stæði, að maðurinn kom ekki heim að bænum. Guðlaug hraðaði för sinni til Jóns, sem ávarpaði hana á þessa leið: „Sæl Lauga mín. Nú er mátturinn farinn“. Sneri Guðlaug þegar heim og sagði hversu komið var fyrir Jóni. Sendi frú Guðrún þá strax til manns síns, til að láta hann vita um þetta, cn fór sjálf með vinnukonum sínum til að koma Jóni til bæjar. Heppnaðist þeim það. Prestur brá strax við, er hann fékk frétt- irnar, og flýtti sér heim. Gat Jón sagt honum, hvernig á ferða- lagi hans stóð og hvar hann skildi við Þorstein. Prestur og hrepp- stjóri komu brátt hingað að Herjólfsstöðum að grennslast eftir, hvort nokkur hefði orðið Þorsteins var. Svo var ekki, og var þá safnað saman mönnum, sem til náðist, til leitar. Var þá farið vestur á sand, en þar sem dagur var að kvöldi kominn, var ekki hægt að leita nema skammt. Sneru leitarmenn við, þegar dimman skall yfir. í birtingu, morguninn eftir, fóru allir karl- menn, sem að hciman komust, til leitar í góðu veðri og heið- ríkju. Dreifðu þeir sér norður og suður um sandinn. Ég var einn leitarmanna. Við vorum komnir langleiðina vestur að Blautukvísl, þegar við sáum, hvar tveir gangandi menn komu upp á ölduna, aust- an megin við kvíslina, og teymdu tvo lausa hesta. Þekktum við <>5 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.