Goðasteinn - 01.03.1965, Side 70

Goðasteinn - 01.03.1965, Side 70
anna var mjög gott; ég vil segja: alveg til fyrirmyndar. Það var höfð samvinna við melskurð, skógarferðir og yfir höfuð öll vcrk utan heimilisins, sem snertu þau bæði. Einnig var það föst venja, ef annar var fyrr búinn að slá túnið en hinn, þá hjálpaði sá, sem fyrr var búinn, hinum að slá það, sem eftir var. I þessum þætti hef ég haldið málfari sveitar minnar, t. d. í því að kaíla það moldbyl, sem menn gætu haldið að merkti sandbyl. Orðið moldbylur var eingöngu notað um snjóbyl, sem var svo svartur, að ekkert sást frá sér. Þrautaganga Jóns í Skálmarbæ mun vart hafa verið skemmri en 25 km. Ég hef rifjað upp þessa sögu til að bregða upp mynd af hinni hörðu lífsbaráttu liðins tíma, baráttu, sem oft lauk með ósigri. Smiðsaugu Ástgeir Guðmundsson smiður í Litlabæ í Vestmannaeyjum var gestur að Kílhrauni á Skeiðum hjá frændfólki sínu, Guðmundi Vigfússyni og börnum hans. Lét Guðmundur þá stugga saman fé og reka til réttar. 1 réttinni voru vænir, stórhyrndir hrútar. Þcir Guðmundur og Ástgeir hugðu að fénu um stund. Vænti Guðmundur að fá hrósyrði um hrútana og beindi athygli Ást- gcirs að þeim. Ástgeir virti þá fyrir sér og sagði síðan: „Það er fallega reiphagldatækt í hornunum á þessum, frændi“. Guð- mundi varð orðfall við svarið. Það voru smiðsaugun en ekki fjáraugun, sem horfðu á hrútana. Sögn Kolbeins Guðmundssonar frá Kílhrauni. 68 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.