Goðasteinn - 01.03.1965, Qupperneq 71
Bjöni Guðmiindsson frá Rauðnefsstöðum:
Eilf af inörgu, sem éo lief ekhi skilii)
Ég hef átt lögheimili á Selfossi frá því vorið 1953, lengst af
í Miðtúni 18 hjá Guðbjörgu Svöfu dóttur minni og manni henn-
ar Þórhalli Þorgeirssyni. En þrátt fyrir það, dvaldi ég oftast
austur í Fljótshlíð, kom stöku sinnum að Selfossi og dvaldi þar
eina til tvær nætur eftir atvikum. Svo var það vorið 1962, að ég
fór að Selfossi og átti þar ýmis erindi að reka, í Kaupfélagi
Árnesinga, á sýsluskrifstofunni o. v. Samkvæmt beiðni Haralds
Guðnasonar bókavarðar í Vestmannaeyjum ætlaði ég að tala við
aldraða konu, Oddbjörgu Kristínu Illugadóttur, ekkju Guðfinns
Jónssonar bónda í Akbraut í Holtum. Hafði hún þá dvalið í
nokkur ár hjá Jóni syni sínum og konu hans, Kristínu Bene-
diktsdóttur, í Smáratúni 2. Móðir Oddbjargar var Jórunn Odds-
dóttir frá Þúfu á Landi. Átti ég að leita upplýsinga um Odd.
Daginn, sem ég kom að Selfossi í þetta sinn, hafðist ég ekki
að, enda áliðið, þegar mig bar að garði. Morguninn eftir fór
ég árla á kreik, kom fyrst í sýsluskrifstofuna, svo bankann og
þar næst í kaupfélagið. Þaðan ætlaði ég heim til Oddbjargar.
Um leið og ég kom út úr kaupfélaginu varð snögg breyting á
líðan minni. Ég varð altekinn vanlíðan og treysti mér ekki með
nokkru móti til gömlu konunnar. Staulaðist ég við illan leik
heim í Miðtún 18 og sagði Svöfu mínar farir ekki sléttar. Henni
varð þá að orði eitthvað á þessa leið: „Ég hcld, að þú hefðir
átt lítið erindi til Oddbjargar, hún dó í nótt“. í töluðum orðum
hvarf mér öll vanmáttarkennd. Þctta hef ég aldrei skilið.
Goöasteinn
69