Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Blaðsíða 20
Áhrifin magnast enn við óvissuna sem samspilið við hinn mjög
svo umtalaða Mraunveruleika" leikaranna hefur á þættina. Þegar
leikarinn sem lék Jock Ewing dó, vissu fastir áhorfendur að Dallas
var í vanda statt. Viku eftir viku biðu þeir þolinmóðir meðan
Jock uhvíldi sig uppi í rúmi". Að lokum dó hann í flugslysi (!)
nokkrum vikum eftir að leikarinn hafði dáið. Undarlegt nokk, þá
hefur þessi ágangur Mraunveruleika" leikaranna engin áhrif á
blekkinguna. Þetta er allt hluti af biðleiknum sem áhorfandinn á
í, á milli skáldsagnaheims sápu-óperanna og hins örlítið minna
skáldsagnalega heims leikaranna. Það að raunverulegir atburðir
hafi áhrif á leikarana og skapi vandamál með hlutverkin og
söguþráðinn ýtir enn frekar undir þá tálmynd að allt sé að gerast,
að líf persónanna sé um leið líf raunverulegs fólks og það hafi
svo aftur áhrif á það sem er að gerast.
Sápu-óperur eru því í tengslum við annan Mraunveruleika",
sem áhorfendur vita að er raunverulegri en frásögnin fyrir frarnan
þá, en gæðir hana bæði lífi og gildi. Stundum eru þessi tengsl
viðurkennd, opinskátt eða ómeðvitað, í handritunum. Til dæmis
þegar skipt var um leikkonuna sem lék Miss Ellie í Dallas tók
handritið undarlega stefnu. Næstu þættir á eftir snérust ekki
um neitt annað en það að sanna tilveru sína. Ekki Miss Elliear,
heldur Jamie Ewing, nýrrar persónu sem efast var um að væri
sú sem hún sagðist vera. Það er athyglisvert að þegar skipt var
um leikkonuna sem lék Falion í Dynasty gerðist það sania í
handritinu. Þá vaknar spurningin um að sigla undir fölsku flaggi
á öðrum stað, þá um persónuna Crystal. Ný persóna er kynnt til
sögunnar sem lítur alveg eins út og Crystal - ekki að undra þar
sem hún er leikin af söntu leikkonunni, Lindu Grey. Þessi nýja
persóna kemur síðan í stað Crystal sem er höfð í haldi. Þannig
að meðan skipt er um leikkonuna sent leikur Fallon, snýst handritið
allt um það hvort einhver taki eftir því að tvífari er að leika
Crystal.
Þessi tvöfeldni í viðkvæmunt málum er einkennandi fyrir sápu-
óperur. í nýlegri þáttaröð af Dynasty sást Crystal eiga barn á
ótrúlega óraunverulegan hátt. Sennilega var hér um að ræða eina
fegruðustu fæðingu sem gerð hefur verið fyrir kvikmyndir og
sjónvarp. Tveimur þáttum síðar var Crystal viðstödd fæðingu
folalds. Hér var allt sýnt. Það var eins og hluta úr dýralífsmynd
18