Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Blaðsíða 57
...óttaðist reiði Seifs, sem er verndargoð gesta og hefnir
strengilega illverkanna. Síðan var eg þar í sjö ár, og græddi
mikið fé hjá Egypzkum mönnum, því allir greiddu fyrir mér.
(Od.:223)
Biðlavígin eru makleg málagjöld vegna þess að biðlarnir vanvirða
gestrisnina.
Á köflum virðast samskipti manna svo rísa upp fyrir þetta
svið viðskiptanna. í Odysseitskviöu er til dæmis lögð áhersla á
skyldur þeirra vel settu við fátæklinga og þurfamenn. Menn eru
einungis hræddir með hefnd Seifs ef þeir rækja ekki þessa skyldu.
Siðferðið er smátt og smátt að öðlast sjálfstæða tilveru og
réttlætishugtakið í mótun. í vopnasmíðaþætti Ilíonskviðu sést
glytta í hugmyndir um lög og rétt þar sem segir frá tveimur
mönnum sem deila en skjóta málum sínum til lögviturra manna.
í Odysseiískviðu ber mun meira á umræðu um réttlæti í sjálfu
sér. Þar er þessi umræða tengd trúarhugmyndum og er á köflum
mótsagnakennd eins og sýnt var fram á í kaflanum um ætlun
höfundar. Annars sýnist mér helsta mótsögnin vera milli kviðanna
tveggja og að hún felist í því að í Odysseifskviðu hafi
siðferðisveruleikinn öðlast meira sjálfstæði en í Ilíonskviðu. Rennir
þetta stoðum undir þá skoðun að Odysseifskviða sé yngra verk
en því má heldur ekki gleyma hve bakgrunnur kviðanna er ólíkur.
í liíonskviðu eru Grikkirnir í stríði fjarri ættjörð sinni þar sem
aðstæðurnar krefjast hugrekki og hreysti en Odysseifskviða lýsir
fjölskyldusamfélagi þar það er allra hagur að friður og vinsemd
ríki. Enn eitt dæmi um hið sjálfstæða siðferði í Odysseilskviðu
má finna í átjánda þætti hennar þar sem Odysseifur segir frá
raunum sínum og kann á þeim vissa skýringu:
Sú var og tíðin, að eg gat verið lánsmaður, en eg framdi margt
ofríki, þar eg treysti á mátt minn og megin, og reiddi mig á
föður minn og bræður mína. Því skyldi enginn maður nokkru
sinni vera óréttvís, heldur njóta með spekt þeirra gjafa, sem
guðirnir veita honum. (Od.:287)
Þarna byggist trúin ekki lengur á hræöslugæðum einum heldur
hugmyndinni um eitthvað sem sé rétt og gott í sjálfu sér. Lögð
er rík áhersla á gildi samfélags manna og laganna sem undir-
55