Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Blaðsíða 94
sjálfsvitund þess verður til er barnið úrkast (abject, sem er
náskylt latneska orðinu ((abjicere" sem þýðir nað kasta burtu",
samkvæmt orðabók Websters). Þetta þýðir að barnið upplifir
aðskilnaðinn frá móðurinni af fullum þunga og í leit sinni að
einhverju til að fullnægja þörfum sínum eða þrá, og einhverju
til að samsama sig við, bregst barnið við með því annað hvort að
yfirfæra væntingar sínar (jákvæða eiginleika sem fullnægt geti
þörfinni) yfir á hlutina í kringum sig, þ.e. göfga þá, ellegar þá
líkamlega með hryllingi, viðbjóði eða uppsölum. Göfgunin er
þannig leið til að sættast við að vera úrkast og koma jafnframt
í veg fyrir hryllinginn sem það vekur. Líkami barnsins, úrgangur
þess og fæða, jafnt sem önnur viðföng, fólk sem hlutir, geta
vakið þessi viðbrögð.
Þótt þetta sé stig í þroska barns, þá er ástandið ekki bundið
við aldursskeið frekar en önnur slík stig heldur erum við öll á
einn eða annan hátt enn og alltaf á hverju stigi þroskans. Þess
vegna getur Kristeva sagt að viðbrögð úrkastsins sjáist ekki hvað
síst þegar dauðinn og það sem tengist honum beint á í hlut, lík
eða hræ eða dauðvona fólk; en einnig alls kyns úrgangur, sorp
og saur. Hjá þeim sem lifir við úrkast eru mörk hins hreina og
óhreina, syndar og banns, hins siðlega og ósiðlega máð út. En
þegar úrkastinu verður ljóst að áminnst leit að sjálfsmynd,
einhverju til að samsama sig við, getur ekki borið árangur fer
það að leita sér fullnægju í óminninu, algleyminu, því að gleyma
öllu.
í l(Draumnum" er það einmitt þegar draumsýninni, þ.e. vænt-
anlegu barni, er ógnað meö dauða sem göfgunin nær hámarki. í
fyrsta hluta sögunnar er barnið fegurðin uppmáluð en fyrstu
viðbrögð umhverfisins við draumsýn konunnar um það eru ósk um
algera limlestingu. Og konan svarar með fullri göfgun:
Það væri óbætanlegt, - stórtjón fyrir allan heiminn, fyrir
fegurðina, gæskuna og skynsemina, - glötun á hamingju alls
heimsins. (37)
Það er ljóst af því hve konan ((undraðist" draumsýnina að
göfgunin er hér leið til að breiða yfir sektarkennd sem hún
hefur vegna barnsins. Hvorki höfnun né sektarkennd eru hér úr
92