Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Blaðsíða 65
og dulúð sem birtist í meydómnum fyrir giftinguna og hollustu
eftir giftinguna, beina þær karlmönnunum inná rétta braut. Eins
og af þessu má sjá hefur konan sakleysið en karlinn reynsluna.
Cavling er líka inná þessari línu en fjallar samt um þetta á
nútímalegri máta: Ungu stúlkurnar sem freista og tæla berkla-
sjúklinginn hann John eru léttar, kátar og bjóðandi en hafa þó
aldrei stigið skrefið til fulls. Þær eru frjálsar skólastelpur með
brókarsótt. Geirþrúður er frek, kröfuhörð og afbrýðisöm og verður
þar af leiðandi vonda konan í sögunni. Hún elskar á frekan og
eigingjarnan hátt og neitar að láta henda sér eins og „skítugri
skyrtu". Þá er farið jákvæðari höndum um nglókollinn" hana Maríu
litlu sem elskar svo óeigingjarnt og heitt að hún heldur sig í
burtu, krefst einskis, skrifar tilfinningalaus bréf, ber harrn sinn
í hljóði og vonar; algerlega óvirk. Þegar John leggst í þunglyndi
og stofnar heilsu sinni í hættu þá er eins og kveikt sé á Maríu
hjúkrunarkonu, hún rýkur af stað til þess heittelskaða og rífur
hann uppúr rúminu og vesældómnum. Hann hrífst ósköpin öll af
þessum krafti hennar og biður hennar en viti menn, sú stutta
neitar honum og segir:
„Eiginmaður minn á ekki að vera arnlóði, sem nennir ekki
að vinna. Hann á ekki að vera pabbasonur, sem hefur mesta
ánægju af að daðra við kvenfólk. Hann á ekki að vera svo
sjálfelskur, að hann getir aldrei lagt neitt á sig fyrir aðra.
Hann á ekki að vera sjálfbirgingslegur og drykkfelldur. Hann
á að vera sannur maður, sem ég get litið upp til og dáð og
getur tekið þátt í gleði minni og sorg. hann á ekki að vera
það vesalmenni að biðja mín þá fyrst þegar hann hefur
komist að raun urn að hann getur ekki fengið mið öðruvísi.
Hann á að geta séö fyrir heimili okkar og væntanlegum
börnum."2)
Og til viðbótar við þetta heimtar hún að þau skilji um veturinn
til að átta sig á hlutunum. En nú er nóg komið af virkni hjá
lítilli og sætri stelpu. Það finnst John líka, slekkur á henni og
heimtar að hún hætti að vinna og bíði eftir sér. Það gerir hún
en hellisbúaeðlið segir til sín og í desember kemur John aftur,
63