Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Page 39

Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Page 39
skilning sem tekur mið af heildarsamhengi verka, það er hugmynda- heimi og veruleika þeirra sjálfra. Hver sem fjallar um bókmenntir frá sjónarhóli siðferðis hlýtur að hafa þetta tvennt að leiðarljósi; leggja verkin sjálf til grundvallar og láta ekki eigin hugmyndir blinda sig. Þegar meta á Hómerskviður er þessi hætta vissulega fyrir hendi þar sem ýmsar athafnir söguhetjanna eru í hróplegri andstöðu við þær siðgæðishugmyndir sem eru hvað fyrirferðarmestar í okkar menningu: Kristnina með kærleiksboðskap sínum og miskunnsemi, almennar mannúðar- og jafnréttishugmyndir sem iðulega eru raktar til upplýsingastefnu 18. aldar svo og þann friðarboðskap sem á rót sína í hvoru tveggja og eðlilegan hljómgrunn áatómöld. Þessar andstæður koma skýrt fram hjá Hómer við þær aðstæður þar sem menn biðja sér griða en er synjað. í sjötta þætti Ilíonskviðu reynir Adrestus að múta Menelási til að þyrma lífi sínu og hrærir hann þannig til meðaumkvunar. Adrestus er hins vegar svo ólánsamur að Agamemnon ber að í þeim svifum og hastar á Menelás bróður sinn: Nei, engi þeirra skal undan komast bráðum bana eða sleppa úr vorum höndum. Ekki einu sinni ungbarnið í móðurkviði skal undan komast, heldur skulu allir jafnt drepnir verða, þeir er í Ilíonsborg eru, liggja ógrafnir, og engi vita, hvað af þeim er orðið. (II.: 1 1 6) Menelási snýst hugur við þessi orð, hrindir Adrestusi frá sér en Agamemnon konungur leggur hann spjóti í nárann. í tíunda þætti fara höfðingjarnir Odysseifur og Díómedes í frækna njósnaför og handtaka Dólon nokkurn Evmedesson. Þeir lofa honum óbeint lífgjöf ef hann veiti þeim upplýsingar um félaga sína og í trausti þess greinir Dólon satt og rétt frá öllu. Hann hefur ekki fyrr sleppt síðasta orðinu en Díómedes heggur af honum höfuðið að launum. Þeir Odysseifur kóróna síðan för sína með því að drepa þrettán sofandi Trójumenn og ræna hestum þeirra. Akkilles verður uppvís að álíka framkomu í tuttugusta sem og tuttugusta og fyrsta þætti þar sem hann synjar þeim Trós Alastorssyni og Lýkáoni Príamssyni um lífgjöf. 37
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Ársrit Torfhildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.