Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Page 72
um það samfélag sem hann er uppruninn úr en vinur hans getur
þó frætt okkur á því að hneyksli er það hryllilegasta sem komið
getur fyrir í hans samfélagi og ekki óalgengt að sjálfsmorð hljótist
af. Slúðrinu má venjast og að lokum virðist John sjá kosti þessa
samfélags í gegnum gallana.
Snjólaug er líka með svona dæmigert, lítið og einangrað
samfélag sem virðist mjög raunverulegt. Vertíð í smáþorpi fyrir
vestan þar sem unnið er myrkranna á milli og dottið í’ða þess á
milli. Þar er kvenfólkið óvirkt: Situr og bíður eftir að þeim sé
boðið á ball og að strákarnir dragi upp flösku því þeir sjá um
vínið. Að alast upp í svona samfélagi skýrir það viðhorf Jonna að
geta ekki gengið að eiga Jóhönnu sem á milljónir í fasteignum í
Reykjvík og hlutabréf út um allar trissur. Þarna eru það karl-
mennirnir sem taka stórar ákvarðanir og eiga fyrirtækin. Konurnar
þurfa bæði að vinna í frystihúsinu og sjá um heimilið eins og
Magga sem þarf að hugsa um fjögur systkini sín og faðirinn verður
eitt í viðbót því hann hreyfir ekki hendinni við heimilisstörf-
unum. Karlinn sem á frystihúsið hugsar ekki vel um starfsfólkið;
situr á fínni skrifstofu þegar starfsfólkið hírist í kulda og raf-
magnsleysi á verbúðinni. Það reynir enginn að breyta þessu, þannig
að draga má þá ályktun að allir séu ánægðir með ríkjandi ástand.
Saga Else-Marie Nohr gerist í yfirstéttarsamfélagi nútímans
þar sem yfirstéttin er kaupsýslumenn og læknar en ekki lávarðar
og lafðir. Fólkið hefur allt til alls, er með ráðskonur og á H...
stórt hús, tvo bíla, seglbát, sumarhús, eyðibýli..."^). Ef þessu
veldi er kippt undan fólki þá er rnjög trúlegt að það fari fyrir
þeim eins og Tom; þau neyðist til að fara út í glæpastarfsemi til
að fá peninga til að geta byrjað uppá nýtt. Ef karlmennirnir eiga
fyrirtækin þá stjórna þeir þeirn sjálfir, sbr. pabbi Lónu, en ef
konur eiga þau þá sjá lögfræðingar og forstjórar urn reksturinn.
Lóna og Tom halda í ríkjandi norm; hún er heima með barnið
og hann vinnur úti. Það er vissara að halda í hefðina því annars
er voðinn vís, sem Lóna reyndi þegar hún var of lengi á balli
og Tom rændi henni.
Mismunurinn á samfélögunum og reglum þeirra sem kemur fram
í þessu sögurn má tengja beint við þann tíma sem þær gerast á.
Hamingjuleit gerist nokkrum árum eftir seinni heimstyrjöldina
þegar það þótti í lagi að ungt fólk spásseraði saman og kysstist
70