Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Síða 81
í Bröndby. Þetta er doðrantur, uppá einar 400 síður, afar skemmti-
legur. Snjallar persónulýsingar, mikil átök, bæði hjá einstaklingum
við sjálfa sig og innbyrðis.
7) Hundrað ára einsemd eftir Gabriel Garcia Marquez. Eitt af
stórvirkjum síðustu ára, kannski soldið Sjálfstætt fólk okkar tíma.
8) Waiting for Godot eftir Samuel Beckett. Kannski asnalegt að
setja leikrit með en það nýtur sín jafn vel í bók og á sviði. Þetta
er svona stórisannleikur sem þarna kemur fram, eitthvað sem
aldrei breytist. Ég segi alltaf færri og færri orð sagði Sigfús
Daðason einhverju sinni, það er kannski líka best, því þau hafa
ekki alltaf þá merkingu sem best væri að þau hefðu.
9) Ljóðasafn Þorsteins frá Hamri. Set það svona afþví að ég get
ekki gert upp á milli einstakra bóka hans. Hann er mitt uppáhalds
ljóðskáld, meistari málsins og myndanna. Svo er það líka þessi
tregi sem kemur svo oft fram, leitin að hinu liðna og samhengi
nútímans við það liðna sem mér finnst gera bækur hans þannig
að ég get alltaf leitað í þær.
10) Jealousy eftir Alain Robbe-Grillet. Halldór Guðmundsson,
mag. art., sagði mér einhverntíma að þetta væri leiðinlegasta bók
sem hann hefði lesið. Ég hélt fram því sama, þangað til ég
uppgötvaði að ég hafði setið fjóra tíma og pælt í skugga sem
kastaðist af súlu til þess að komast að því hvenær dagsins
viðkomandi atriði átti að gerast. Eftir það líður mér alltaf eins
og ég hafi komist í gegnum erfitt stærðfræðidæmi þegar ég hef
lesið bókina þó ég verði að viðurkenna að ég nota hana ekki sem
afþreyingu.
Ástráður Eysteinsson:
Ekki þori ég að fullyrða hverjar séu 10 helstu eftirlætisbækur
mínar; slíkt val er síbreytilegt og ætíð háð áhrifum líðandi stundar.
Einnig má spyrja hvort telja skuli með verk sem manni þykir
vænt um af því þau höfðu einhvern tíma mikil áhrif og bera
kannski einhverja ^ábyrgð" á því að maður tók að verja lífi sínu
að svona miklu leyti í bóklestur og bókmenntarannsóknir. Og
það allt eins þótt maður nenni vart að lesa þau í dag? Það er
ekki einu sinni víst að maður vilji ljóstra slíkri væntumþykju
upp.
79